Sport

Dag­skráin: Spennan magnast á Opna banda­ríska risamótinu í golfi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
J.J. Spaun kyssir bikarinn sem hann vann á US Open í fyrra.
J.J. Spaun kyssir bikarinn sem hann vann á US Open í fyrra. Getty/Ben Jared

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á föstudögum.

Golfíþróttin á þennan dag enda Opna bandaríska risamótið í golfi, US Open, í fullum gangi og þar eigum við Íslendingar keppendur í fyrsta sinn. Gunnlaugur Árni Sveinsson tryggði sér þátttökurétt á mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Í dag tekur við barátta bestu kylfinga heims um sigurinn á mótinu þar sem annar risamótstitill ársins er í boði.

Það verður einnig sýnt frá á Opna breska áhugamannamótinu, Amateur Championship, sem er sterkasta áhugamannamót ársins.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport

Klukkan 16.00 hefst bein útsending frá Opna bandaríska risamótinu í golfi, US Open.

Klukkan 20.00 hefst bein útsending frá Opna bandaríska risamótinu í golfi, US Open.

SÝN Sport 4

Klukkan 07.30 hefst bein útsending frá Opna breska áhugamannamótinu í golfi, Amateur Championship.

Klukkan 12.30 hefst bein útsending frá Opna breska áhugamannamótinu í golfi, Amateur Championship.

Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá Meijer LPGA Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×