Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar 13. júní 2026 10:46 Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja, svo ég byrja bara. Í maí síðastliðnum skrifuðu 2 einstaklingar undir leigusamning á landi í Gufunesi fyrir hönd Samtaka Hjólabúa, þar sem skráning félagsins var ekki komin í gegn hjá skattinum, 12.júní er tekin sú ákvörðun Í TRÚNAÐI að rifta þeim samningi. Af hverju þurfti þessi málsmeðferð að vera trúnaðarmál? Hvað fór fram á þessum fundi sem má ekki líta dagsins ljós? Og af hverju eru gefnar út yfirlýsingar á vef Reykjavíkurborgar sem eru ósannar? Ég man ekki til þess að við höfum farið fram á að borgin sæi alfarið um allan kostnað við að standsetja svæðið, enda engin í nýjum meirihluta sýnt okkur þá virðingu að setjast niður með okkur og eiga samtal. Þar fóru kosningaloforðin að vera í meiri samskiptum við fólkið í borginni. Aftur á móti hefði okkur þótt sjálfsagt að borgin léti leggja vatn og rafmagn að lóðarmörkunum, líkt og þegar önnur byggð er skipulögð. Við höfum ekki heldur falið það að við erum nýstofnuð óhagnaðardrifin félagasamtök sem eiga enga peninga og höfðum við ákveðið að sækja um styrk til borgarinnar, sem og annarra, til að geta farið í framkvæmdir og búið okkur fallegt, öruggt og snyrtilegt umhverfi að búa í. En nei, okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða, þar sem við höfum verið í 3 ár 16.júní næstkomandi, þar sem hvaða óþjóðalýður sem er getur, akandi sem gangandi, valsað fram og til baka með tilheyrandi ófriði á öllum tímum sólarhrings. Á seinasta mánuði hef ég í tvígang þurft að hringja á lögreglu vegna grunsamlegra mannaferða á svæðinu. Ekki bætir úr skák að nýverið var ungum mönnum veittur aðgangur inn í húsið þar sem þvottavélin okkar og þurrkari meðal annars eru staðsett, og hefur umgengnin farið snarversnandi síðan. Þeir hafa stíflað annað salernið og brotið af því setuna, brotið upp hurð, skilið eftir fullt af rusli fyrir utan húsið þar sem allir sjá sem eiga leið framhjá og eru miðað við lyktina að reykja ólögleg vímuefni þarna inni. Þetta sést glögglega á myndunum sem fylgja og voru teknar af fólki sem býr á svæðinu. Og við fáum á okkur stimpilinn óreglufólk og sóðar fyrir framgang okkur alls óviðkomandi aðila. Auk þess sem umsjónaraðili svæðisins, Þorvaldur Daníelsson varaborgarfulltrúi framsóknarflokksins, sést aldrei á svæðinu og þegar einn úr hópnum hafði samband við hann vegna þessa hefur hann ekki fengið nein svör. Svo já ég er reið vegna þessarar framkomu gagnvart okkur og grét heilan dag úr vonbrigðum og reiði. Ég er reiðust fyrir hönd alls þess sómafólks sem ég kalla nágranna mína og hef lært að þykja vænt um þann tíma sem við höfum fylgst að. Þegar ég verð vitni að svona ranglæti verður mér hugsað til þess þegar ég horfði á kvikmynd með móður minni heitinni þar sem heilum þjóðbálk indíána, menn, konur og börn, var slátrað af hvíta manninum. Og ég sagði grátandi við hana “Ég hef aldrei skammast mín jafn mikið fyrir að vera hvít”. Núna segi ég “Ég hef aldrei skammast mín jafn mikið að vera íbúi í Reykjavík” Höfundur er gjaldkeri Samtaka hjólabúa, íbúi í hjólhýsi, baráttukona og hörkutól. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjólhýsabyggð í Reykjavík Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar