Viðskipti erlent

Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023

Freyja Þórisdóttir skrifar
Christine Lagarde, seðlabankastjóri Seðlabanka Evróðu, ávarpar fjölmiðla á blaðamannafundi í Frankfurt í Þýskalandi.
Christine Lagarde, seðlabankastjóri Seðlabanka Evróðu, ávarpar fjölmiðla á blaðamannafundi í Frankfurt í Þýskalandi. AP

Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur nú hækkað stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í von um að sporna gegn verðbólgu. Bankinn er sá fyrsti af mörgum stærstu seðlabönkum heims til að bregðast við hinu svokallaða orkuáfalli en eldsneytisverð hefur rokið upp undanfarna mánuði vegna stríðsins í Íran. Hagfræðingar hafa undanfarið deilt um hvort ákvörðunin sé réttlætanleg.

Stýrivextir Seðlabanka Evrópu hækka um 0,25 prósentustig við breytingu, úr 2,0 prósentum í 2,25 prósent. Hækkunin í dag er fyrsta hækkun bankans síðan í september 2023 en eftir um viku munu seðlabankar Bandaríkjanna, Japan, Englands og fleiri leiðandi stofnana taka stefnuákvarðanir. Er þetta meðal þess sem fram kemur í samantekt fréttaveitunnar Reuters. Þar segir einnig að búast megi við tveimur hækkunum til viðbótar á þessu ári.

„Stríðið í Miðausturlöndum veldur verðbólguþrýstingi og ákvörðunin um að hækka vexti er traust í ljósi ýmissa sviðsmynda sem kortleggja hvernig áfallið gæti þróast,“ er haft eftir Christine Lagarde seðlabankastjóra í opnunaryfirlýsingu sinni, í greininni.

Hagfræðingar um allan heim hafi undanfarið deilt um hvort réttlætanlegt sé að herða peningastefnuna en víða um Evrópu er verðbólga vel yfir 2 prósenta markmiði bankans og hagvöxtur lítill.

Viðbúin ákvörðun

Samkvæmt heimildum Reuters höfðu hagfræðingar búist við ákvörðununni um hækkun vaxta og sögðu hana aðallega miða að því að halda verðbólguvæntingum í skefjum og verja trúverðugleika Seðlabanka Evrópu eftir að hann var seinn að bregðast við verðbólguskoti eftir heimsfaraldurinn árið 2022.

Paul Donovan, aðalhagfræðingur hjá UBS Global Wealth Management, sagði meðal annars að bankinn væri að gera „mistök“ og væri fastur í „gagnslitlu hugarfari frá 2022“, og vísaði þar til verðbólguskotsins sem fylgdi í kjölfar lokana vegna kórónuveirufaraldursins 2019.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×