Samstarf

Nýjar í­búðir í Firði: Lúxus að búa í mið­bæ Hafnar­fjarðar

Strandgata 26
Opið hús verður á morgun að Strandgötu 26 í Hafnarfirði þar sem glæsilegar íbúðir eru komnar á sölu. Strandgata 26 var kosin glæsilegasta nýbygging höfðuðborgarsvæðisins árið 2025.
Opið hús verður á morgun að Strandgötu 26 í Hafnarfirði þar sem glæsilegar íbúðir eru komnar á sölu. Strandgata 26 var kosin glæsilegasta nýbygging höfðuðborgarsvæðisins árið 2025.

Mörg okkar dreymir um að geta gengið út úr húsi á morgnana, gripið nýbakað brauð í bakaríinu, sest á kaffihús eða rölt niður að höfninni án þess að þurfa að setjast upp í bíl. Nú gefst tækifæri til að láta þann draum rætast í nýjum íbúðum sem eru komnar í sölu í miðbæ Hafnarfjarðar að Strandgötu 26. Opið hús í dag, fimmtuag 11. júní og á laugardaginn 13. júní.

Íbúðirnar eru hluti af metnaðarfullri uppbyggingu við Strandgötu 26 þar sem nútímaleg hönnun mætir líflegu bæjarlífi. Strandgata 26 samanstendur af íbúðum, verslunarkjarna, hóteli og bókasafni og var kosin glæsilegasta nýbygging höfðuðborgarsvæðisins árið 2025. 

Fjölbreyttar stærðir íbúða

Alls er 31 íbúð í húsinu, engin þeirra eins, með fjölbreyttu útsýni, yfir sjóinn eða gamla bæinn. Frágangur er vandaður og íbúðirnar einkennast af gólfsíðum gluggum, gólfhita, innfelldri lýsingu, sérsmíðuðum innréttingum, stórum svölum og þakgörðum.

Íbúðirnar eru frá um 50 fermetrum upp í rúmlega 210 fermetrum að stærð og höfða því bæði til þeirra sem vilja minnka við sig og njóta lífsins og yngra fólks sem vill búa í lifandi miðbæ með alla þjónustu við höndina. 

Stærri eignunum fylgir bílastæði, en einnig er hægt að kaupa sér bílastæði í lokuðum bílakjallara sem er eingöngu ætlaður íbúum. Þar fyrir utan eru um 550 bílastæði í nágrenninu sem í dag er ókeypis að leggja í og er nauðsynlegt t.d. þegar von er á gestum.

Lét eigin draum um miðbæjarlíf rætast

Guðmundur Bjarni Harðarson framkvæmdastjóri Fjarðar og dóttir hans Guðrún María Guðmundsdóttir markaðs- og verkefnastjóri.Vilhelm

Á bak við verkefnið standa m.a. feðginin Guðmundur Bjarni Harðarson og Guðrún María Guðmundsdóttir en þau voru í skemmtilegu viðtali á dögunum þar sem þau sögðu frá samstarfinu. Guðrún er markaðs- og verkefnastjóri sem sér um Strand hótel Apartments, Fjörð verslunarmiðstöð og íbúaturninn á meðan Guðmundur stýrir uppbyggingu svæðisins. 

Guðmundur segir hugmyndina að uppbyggingu íbúðakjarnans hafa verið að skapa heimili þar sem fólk geti notið lífsins til fulls, eins og hann langaði sjálfur til.

„Það var gamall draumur að búa í miðbæ, í göngufæri við þjónustu, veitingahús og bakarí. Okkur langaði samt ekki að búa í miðbæ Reykjavíkur en gátum vel hugsað okkur að búa í miðbæ Hafnarfjarðar. Hér færðu þessa notalegu þorpsstemningu þar sem menning, listir og mannlíf blómstra.“ 

Allt sem þarf á einum stað

Eitt af því sem gerir verkefnið sérstakt er að íbúðirnar eru byggðar ofan á verslunarkjarnanum Firði þar sem íbúar hafa beinan aðgang að fjölbreyttri þjónustu, en beint aðgengi er frá íbúðum inn í verslunarkjarnann. Þar má finna matvöruverslun, apótek, verslanir, snyrti- og hárþjónustu ásamt fjölbreyttum veitingastöðum og bakaríi. 

„Það er rosalega þægilegt að geta labbað á inniskónum, nánast í náttfötum á sunnudagsmorgnum í bakaríið að sækja smurt og snúð fyrir uppáhalds eiginkonuna.“ 

Á annarri hæð hússins opnar í sumar nýtt og glæsilegt bókasafn Hafnarfjarðar sem verður mun meira en hefðbundið bókasafn. Þar verður meðal annars boðið upp á hljóðver, listasmiðjur, fundarrými og fjölskylduvæna afþreyingu sem gerir það að lifandi samkomustað fyrir fólk á öllum aldri.

Guðmundur segir að hugmyndafræðin sæki innblástur til Norðurlandanna þar sem slík þekkingarsetur séu orðin mikilvægur hluti af daglegu borgarlífi.

Menningin rétt handan við hornið

Miðbær Hafnarfjarðar hefur á síðustu árum styrkt stöðu sína sem einn skemmtilegasti menningarbær landsins. Þar eru fjölmargir veitingastaðir, kaffihús, verslanir og viðburðir allt árið um kring. Bæjarbíó er í örfárra mínútna göngufæri og bæjarhátíðir á borð við Hjarta Hafnarfjarðar og Jólaþorpið laða að sér þúsundir gesta ár hvert.

„Það er æðislegt að búa í svona samfélagi. Hér er alltaf eitthvað í gangi og menningin lifir með bænum. Þetta er gefandi staður til að búa á, svo þegar maður er ekki í stuði til að elda, þá eru um 10 veitingastaðir í um 5 mínútna göngufjarlægð,“ segir Guðmundur, Strandgata 26 sameini þægindi nútímans og heillandi miðbæjarlíf á einstakan hátt.

Opið hús verður í dag, fimmtudag milli klukkan 18 og 19 og á laugardaginn 13. júní milli klukkan 12 og 13.

Vilhelm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×