Jesús áfram í Stjörnunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júní 2026 21:30 Gunnar Már Másson mun halda áfram að halda leikmönnum karlaliðs Stjörnunnar gangandi eftir átökin inni á vellinum í Bónusdeildinni. @stjarnankarfa Stjarnan hefur samið við íþrótta- og hreyfifræðinginn Gunnar Má Másson um að vera áfram í teymi Stjörnunnar næsta leiktímabil en körfuboltastrákarnir kalla hann Jesús.
Gunnar hefur unnið bæði með íslenska landsliðinu og Stjörnunni. Hann kom til Stjörnunnar í úrslitakeppninni 2025 og spilaði stórt hlutverk í að Stjarnan vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. „Það sem gleður mig að sjá þarna er Gunnar Már Jesús sjálfur með kampavínið. Ég hef aldrei séð einn mann hafa eins mikil áhrif á íþróttalið ever. Þetta er kjarkurinn þessi maður. Það er andleg orka frá honum og hann bara lagar menn. Ef þér er illt þá lagar hann þig, ég hef aldrei séð svona apparat. Ingi Þór [Steinþórsson, aðstoðarþjálfari] finnur bara svona menn,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir að liðið tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil vorið 2025. Gunnar hefur unnið náið með þjálfurum, leikmönnum, sjúkraþjálfurum og styrktarþjálfurum við utanumhald leikmanna meistaraflokks karla í Garðabænum. „Sú umgjörð sem sköpuð hefur verið í Garðabænum þar sem ungir uppaldir leikmenn fá að skína í bland við þá reynslumeiri er mér að skapi og mér líður vel hjá Stjörnunni,“ segir Gunnar Már á miðlum Stjörnunnar og hlakkar til áframhaldandi samstarfs. „Við erum mjög glöð að Gunni velji að vinna áfram með Stjörnunni. Starfið okkar síðustu ár kallar á áframhaldandi fagmennsku og í því er Gunni mikilvægt púsl!“, segir Einar Karl formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar. View this post on Instagram A post shared by Stjarnan Körfubolti (@stjarnankarfa)
Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira