Stefnir í uppbótartíma Agnar Már Másson skrifar 11. júní 2026 16:32 Þórunn Sveinbjarnardóttir þingforseti. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir ólíklegt að þinglok verði á morgun eins og til stóð samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Hún vill ekki fullyrða hvort náist að samþykkja samgönguáætlun á næstu dögum. „
Þingflokksformenn eru að ráða ráðum sínum,“ segir Þórunn í samtali við fréttastofu, „og ráða ráðum sínum um þinglokasamkomulag. Við bíðum bara eftir því að það takist. En þingfundum verður haldið áfram á meðan staðan er svona.“ Hildur Sverrisdóttir, einn af varaforsetum Alþingis, tilkynnti í pontu upp úr klukkan 15.30 að ákveðið hefði verið að fella starfsáætlun Alþingis fyrir 157. löggjafarþing úr gildi frá og með morgundeginum. Þetta þýðir þá að þinglok ráðast fyrst og fremst af afgreiðslu nokkurra stórra mála. Á dagskrá þingsins standa enn samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040, sem er í framhaldi síðari umræðu, frumvarp um Innviðafélag, sem er í framhaldi annarrar umræðu, og fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031, sem bíður síðari umræðu. Þinglok ráðast því af því hvort og hvenær tekst að ljúka umræðu, breytingartillögum og atkvæðagreiðslum um þessi mál eða semja um að einhver þeirra bíði fram á haust. Telur þú líklegt að þingið nái að klára störfin á morgun? „Nei, ég tel það ólíklegt,“ svarar Þórunn þingforseti. Eru einhver ákveðin mál sem þingflokksformenn takast mikið á um? Það eru þau mál sem hafa verið til umræðu í þinginu og hafa verið í vinnslu hér undanfarna mánuði. En það er í sjálfu sér ekkert annað um það að segja.“ Búist þið við því að geta samþykkt samgönguáætlun í dag eða á morgun? „Á þessari stundu get ég ekkert fullyrt neitt um það.“
Alþingi Samgönguáætlun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira