Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar 11. júní 2026 13:31 Það er eins og að liggja í barnalauginni að fylgjast með umræðunni um skattahækkanir, aukna gjaldtöku og útþenslu ríkisútgjalda. Hún er afskaplega grunn og barnaleg. Það er sífellt talað fyrir aukinni útþenslu ríkisins og síðan á að borga fyrir það með skattahækkunum eða frumlegri gjaldtöku. En þegar afleiðingar aðferðafræði núverandi meirihluta eru skoðaðar vaknar upp stór spurning: Hverjir borga brúsann? Það er nefnilega þannig að láglauna- og millistéttarfólkið borgar hann í nær öllum tilfellum. Það er auðvelt að segjast ætla að hækka skatta á fyrirtæki, en hverjar eru afleiðingarnar? Það er nefnilega alveg sama hvort skattar séu hækkaðir á banka, bakarí eða Baggalút. Það eru alltaf neytendur bankanna, bakkelsisins eða Baggalúts sem greiða aukin útgjöld þessara rekstraraðila. Enda líta þeir á skatta sem útgjöld og þegar útgjöldin hækka, þá þarf að auka tekjurnar. En hvað segir sagan okkur? Árið 2013 hækkaði Ungverjaland skatta af tekjum á rafrænar millifærslur úr 0,2 % í 0,3 %, sem skilaði sér í nær tvöföldun á árgjaldi debetkorta. Árið 2024 hækkuðu Þjóðverjar virðisaukaskatt á veitingaþjónustu úr 7 % í 19 %, sem rannsóknir sýna að hafi skilað sér í beinni hækkun til neytenda upp á 6,5 %. Hollendingar hækkuðu virðisaukaskatt á listviðburði úr 6 % í 19 %, yfir 12 mánuði, frá 2011 til 2012. Þetta skilaði sér í 12.3 % hærra miðaverði. Öll þessi dæmi sýna okkur það sem excel skjöl og tekjulíkan fjármálaráðuneytisins sýna ekki. Markaðurinn og fyrirtækin bregðast við hærri sköttum eða aukinni gjaldtöku með því að hækka verð á þjónustu og vörum. Ríkisstjórnin veit þetta, en neitar að minnast á þetta þegar að hún hækkar skatta eða finnur upp nýja leið til gjaldtöku. Það er nefnilega alveg sama hvort að við hækkum tekjuskatta einstaklinga- eða fyrirtækja, virðisaukaskatt, banka- eða bílaskatta. Það er alltaf meðalmaðurinn í landinu sem mun borga þá. Eina lausnin til þess að ná hallalausum ríkissjóði er að horfa framhjá tilfinningum og einföldum skyndilausnum sem koma til með að bíta okkur í rassgatið eftir þrjá mánuði. Í staðinn verðum við að ráðast í langtíma aðhald að ríkisútgjöldum. Kjósendur verða nefnilega að fara átta sig á því að í nær öllum tilfellum þar sem skattar á „X“ eru hækkaðir þá er hægt að leysa fyrir „X“ með því að setja „þig“ í staðinn. Enda borgum „við“ alltaf brúsann. Höfundur er stjórnarmaður í Sambandi ungra sjálstæðismanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar