Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar 10. júní 2026 13:00 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur nú til umsagnar frumvarp til laga um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Ljóst er að nefndinni er vandi á höndum. Frumvarpið á sér nokkurn aðdraganda, en hér er rétt að hefja söguna þriðjudaginn 2. september sl. Þann dag boðuðu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra til fundar með framkvæmdastjórum heilbrigðiseftirlitssvæða og Sambandi íslenskra sveitarfélaga – með aðeins tveggja klukkustunda fyrirvara. Á fundinum kynntu ráðherrarnir tveir áform um allsherjar ríkisvæðingu eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum annars vegar og matvælum hins vegar, og að heilbrigðisnefndir sveitarfélaga yrðu lagðar niður frá og með 1. janúar 2027. Síðar um daginn héldu ráðherrarnir sameiginlegan blaðamannafund þar sem þeir kynntu áformin og stilltu sér upp fyrir ljósmyndara. Erfið byrjun Frá upphafi hefur málið einkennst af skipulagsleysi og óvissu, ekki síst innan Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Þann 17. nóvember boðaði atvinnuvegaráðherra skyndilega til fundar og upplýsti um fyrirhugaða sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, og jafnframt að matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga myndi færast inn í þessa nýju, risastóru ríkisstofnun. Þarna varð jafnframt ljóst að frumvarp ráðherrans yrði af allt öðrum toga en kynnt hafði verið í september. Þegar þarna var komið sögu virðist eitthvað hafa dregið úr samskiptum milli ráðherranna tveggja, þar sem atvinnuvegaráðherra hafði litlar upplýsingar um fyrirhuguð drög að frumvarpi kollega síns í Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Ekkert hafði þó breyst varðandi yfirumsjón með verkefninu; verkefnisstjórinn sem kynntur var til sögunnar átti áfram að hafa umsjón með báðum verkefnum. Þann 18. desember sl. bárust þær upplýsingar frá ráðuneytisstjóra Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins að verkefnisstjórinn væri hættur. Það væri nú í höndum Umhverfis- og orkustofnunar annars vegar, og sameinaðrar stofnunar Verðlagsstofu skiptaverðs, Fiskistofu og Matvælastofnunar (stofnunar sem er ekki orðin til) hins vegar, að sjá um innleiðingu verkefnisins. Kortlagning hafin - þremur mánuðum eftir ákvarðanatöku Um svipað leyti og ráðuneytið tilkynnti um brotthvarf verkefnisstjórans óskaði það eftir upplýsingum um þau verkefni sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sinnir í raun fyrir sveitarfélögin í landinu. Markmiðið var að ráðuneytið fengi heildarmynd, nokkurs konar kortlagningu. Með öðrum orðum hófst kortlagning kerfisins ekki fyrr en þremur og hálfum mánuði eftir að ákvörðun um að breyta því hafði þegar verið tekin. Frumvarpið var loks birt í samráðsgátt í lok janúar og þrátt fyrir fjölmargar athugasemdir tók það litlum breytingum áður en það var lagt fram á Alþingi. Núna er það til umfjöllunar hjá Umhverfis- og samgöngunefnd, en hún þarf að fara yfir fjölmargar alvarlegar athugasemdir frá sveitarfélögum, landshlutasamtökum, stéttarfélögum og heilbrigðiseftirlitssvæðum, sem flest lýsa miklum vanköntum á frumvarpinu. „Stefnt að því, og það sem fyrst“ Það er afar upplýsandi að fylgjast með framvindu málsins á vef Alþingis. Reglulega koma fram nýjar upplýsingar frá ráðuneytinu og það er hverjum manni ljóst að ráðuneytið er ekki að hjálpa nefndinni að taka afstöðu til framkominna athugasemda. Tökum nokkur dæmi: Áhyggjum af réttindum starfsfólks varðandi kaup, kjör, lífeyrisréttindi og starfsaldur er svarað á þann veg að ráðuneytið telji að veikindaréttur sé sambærilegur hjá ríki og sveitarfélögum. Hvað varðar áhyggjur af skertu aðgengi sveitarfélaga að þeirri sérfræðiþekkingu sem er til staðar hjá heilbrigðiseftirlitinu, bendir ráðuneytið á þann möguleika að sveitarfélögin geti einfaldlega haft samband við Umhverfis- og orkustofnun. Þá svaraði ráðuneytið því til að stefnt sé að því að eyða óvissu varðandi réttindi starfsfólks og verkefni sveitarfélaga „sem fyrst eftir gildistöku laganna“. Stefnt að því, og það sem fyrst. Þetta svar hlýtur að auðvelda nefndinni störf sín. Áhyggjum af þeim skamma tíma sem til stefnu er þar til hinar umfangsmiklu kerfisbreytingar eiga að taka gildi, svarar ráðuneytið hreinlega ekki. Nýjasta útspil ráðuneytisins er skjal sem birtist á vef Alþingis þann 8. júní sl. Í skjalinu gætir hins vegar grafalvarlegs misskilnings varðandi útgáfu starfsleyfa fyrir neysluvatnsveitur og eftirlit með neysluvatni. Lausn vandans liggur hjá ráðherra Það er ljóst að ráðuneytið hefur hvorki lokið kortlagningu né öðlast heildarmynd af því kerfi sem það hyggst breyta. Þær upplýsingar sem nefndinni eru látnar í té bera þess skýr merki. Einmitt þess vegna er nefndinni vandi á höndum. Til þess að leysa vanda nefndarinnar og koma í veg fyrir enn frekari vandræðagang hjá ráðuneyti sínu, á Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þann eina kost í stöðunni að draga málið til baka. Taka þarf frumvarpið aftur inn í ráðuneytið til gagngerrar endurskoðunar. Þá gæfist ráðuneytinu mikilvægur tími til að klára kortlagninguna, öðlast heildarmynd yfir kerfið og meta í framhaldi af því – á faglegum grundvelli – hvort og þá hvaða breytinga sé í raun þörf. Höfundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra og hefur starfað sem heilbrigðisfulltrúi síðan árið 2004. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Skoðun Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun