Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar 9. júní 2026 13:47 Margir tengja sumarfrí við slökun og endurhleðslu. Samt finna fjölmargir fyrir auknum brjóstsviða, uppþembu, óþægindum eftir mat eða almennri vanlíðan frá meltingarfærum yfir sumarmánuðina. Það kann að hljóma þversagnakennt, en þrátt fyrir að við séum í fríi er líkaminn ekki endilega í fríham. Sumarið felur oft í sér ferðalög, breyttar daglegar venjur, svefntruflanir, fjölskylduábyrgð og meiri félagslegar skuldbindingar. Foreldrar þekkja vel að sumarfrí barna getur verið jafn krefjandi og það er skemmtilegt. Líkaminn upplifir slíkar breytingar sem álag, jafnvel þótt þær séu jákvæðar. Þegar streitan sækir að fær meltingarkerfið oft ekki sömu athygli frá líkamanum og við venjulegar aðstæður. Framleiðsla magasýru og meltingarensíma getur orðið minni og meltingin því ekki eins skilvirk. Þá getur matur sem við borðum daglega án vandræða allt í einu valdið þyngslatilfinningu, uppþembu eða brjóstsviða eftir máltíðir. Þetta á sérstaklega við um stórar og flóknar máltíðir. Grillveislur, hlaðborð, eftirréttir, áfengi og sífellt nart yfir daginn geta verið meira álag á meltingarkerfið en við gerum okkur grein fyrir. Feitur matur dvelur lengur í maganum og hægir á magatæmingu. Þegar maginn er fullur í lengri tíma eykst þrýstingur upp að vélinda og líkurnar á bakflæði aukast. Þess vegna upplifa margir meiri brjóstsviða eftir grillmat, hamborgara, rjómasósur eða aðrar þungar máltíðir. Áfengi getur einnig haft áhrif á eðlilega starfsemi neðri vélindahringvöðvans sem á að halda magainnihaldi niðri. Þegar sá vöðvi slakar meira á en æskilegt er verður auðveldara fyrir magainnihald að ferðast upp í vélinda og valda sviða. Þegar brjóstsviði lætur á sér kræla er algengt að fólk leiti beint í magasýrulækkandi lyf, þótt það taki slík lyf ekki reglulega. Áður en farið er þá leið getur hins vegar verið vert að gefa meltingunni aðeins meiri athygli. Stundum er meltingarkerfið einfaldlega undir meira álagi en venjulega og þá geta einfaldar breytingar á matarvenjum og lífsstíl skipt verulegu máli. Hér eru nokkur ráð sem geta hjálpað: Forðastu að borða þar til þú ert alveg pakksödd/saddur Veldu einfaldari máltíðir þegar meltingin er viðkvæm Takmarkaðu eða slepptu áfengi ef þú finnur fyrir einkennum Farðu í stuttan göngutúr eftir máltíð í stað þess að leggjast niður Borðaðu hægar og tyggðu matinn vel Ef þú vilt prófa einföld bjargráð áður til að líða aðeins betur í sumar þá eru hér nokkur úrræði sem margir finna að geti hjálpað. Sumir upplifa að hreint sódavatn rói óþægindi. Aðrir kjósa að fá sér þynnt eplaedik, til dæmis eina matskeið í vatnsglasi, eða sítrónuvatn. Einnig getur verið gott að fá sér epli eftir máltíð ef óþægindi gera vart við sig. Mikilvægt er að borða það hægt og tyggja vel. Mitt besta ráð er þó að tileinka sér aðeins suðrænni matarvenjur yfir sumarið. Setjast niður, njóta matarins og gefa sér tíma. Byrja á salatinu, halda síðan áfram með próteingjafann og klára að lokum kartöfluna eða annað meðlæti. Með því að hægja aðeins á sér fær meltingarkerfið betra tækifæri til að vinna sitt starf. Meltingin er oft spegill á það hvernig okkur líður. Ef við gefum okkur tíma til að borða í rólegheitum, njóta matarins og draga aðeins úr hraðanum þá getur maginn verið aðeins hamingjusamari í skemmtilegum ævintýrum sumarsins. Höfundur er næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar