Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar 9. júní 2026 12:00 Flestir en langt frá því allir eru einhuga um að þeim sem hefur verið synjað um dvalarleyfi á íslandi verði gert að yfirgefa landið. Algengast er að fólk sem fær synjun um dvalarleyfi virði þá niðurstöðu stjórnvalda og fari annað hvort sjálfviljugir af landi brott eða þiggi aðstoð yfirvalda til þess. Samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra um brottfararstöð er gert ráð fyrir að í þeim undantekningar tilvikum þar sem fólk sýnir engan samstarfsvilja og vægari úrræði hafa ekki dugað, verði það fólk vistað í sérstakri brottfararstöð. Brottfararstöðin yrði betra og vægara úrræði en það sem fjölskyldur sem neyta að yfirgefa landið búa við nú. Í dag eru fullorðnir sem neita að yfirgefa landið eftir synjun um dvalarleyfi og sýna ekki samstarfsvilja vistaðir í gæsluvarðhaldi. Ef börn eru með þeim í för eru þau vistuð í úrræðum á vegum barnaverndaryfirvalda, fjarri foreldrum. Með tilkomu fjölskylduúrræðis í brottfararstöð er komið í veg fyrir að fjölskyldur í þessum aðstæðum verði aðskildar. Í brottfararstöð geta fjölskyldur dvalið saman fram að brottför og börn verða ekki á neinum tímapunkti aðskilin frá foreldrum sínum. Það er erfitt að fylgjast með málflutningi samtaka og þingmanna sem beita sér gegn því að gefa börnum kost á því að dvelja með foreldrum sínum í brottfararstöð skömmu áður en þau fara úr landi. Sá málflutningur tekur er varla með hagsmuni barnanna í huga? Er sem sagt betra að halda áfram núverandi fyrirkomulagi og aðskilja börn frá öðrum fjölskyldumeðlimum og láta þau dvelja á vegum barnaverndaryfirvalda fjarri foreldrum? Það er ljóst að sum þeirra samtaka sem lita það afar dökkum litum að gefa börnum kost á að dvelja með foreldrum sínum í brottfararstöð eru, einfaldlega alfarið á móti því að komið verði á skýrri stjórn og skilvirkni á landamærunum. Þeirra á meðal eru samtökin No Borders og Solaris. Það er miður að nokkrir þingmenn taki undir þennan málflutning. Taki undir upphrópanir um að það standi til að svipta börn frelsi sínu og reyni þannig að slá sig til siðferðisriddara. Það er eitthvað annað en hagur barna sem ræður för þegar málflutningurinn er á þessu plani. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar