Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. júní 2026 16:27 Tónlistarmaðurinn Talay Riley var stunginn til bana í Lundúnum, aðeins 35 ára gamall. Getty Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní.
Sjúkraflutningamenn fundu Riley, sem hét réttu nafni Mark Orabiyi, í garði í Silvertown-hverfi með fjölda stunguáverka og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Breski miðillinn The Guardian greindi andláti tónlistarmannsins en í umfjöllun blaðsins kom fram að þrír hefðu verið handteknir samdægurs vegna gruns um hafa átt þátt í morðinu. Þar af var 27 ára karlmanni sleppt úr haldi gegn tryggingu og 24 ára karli og 25 ára konu sleppt úr haldi án frekari málalenginga. Lundúnalögregla er enn að rannsaka málið og óskar eftir því að fólk sem var á svæðinu þegar Riley var stunginn til bana eða er með myndefni frá morgninum gefi sig fram. Skrifaði fyrir tugi tónlistarmanna „Hjarta mitt er brotið! Þetta virðist svo óraunverulegt, eins og í martröð,“ sagði bróðir Riley, framleiðandinn Michael Orabiyi sem gengur undir nafninu Scribz Riley, í andlátstilkynningu á Instagram. „Þú fylltir svo marga innblæstri og arfleifð þín mun lifa áfram gegnum tónlist þína, fjölskyldu, vini og alla sem voru svo sælir að hafa kynnst þér,“ sagði hann um bróður sinn en meðal þeirra sem hafa minnst tónlistarmannsins eru rapparinn Stormzy, söngvarinn Oritsé Williams og tónlistarkonan Kehlani. View this post on Instagram A post shared by @scribzriley Mark Olabanji A. Olayinka A. Orabiyi fæddist í Lundúnum 1990, skrifaði undir fyrsta plötusamning sinn átján ára gamall við Global Publishing, gaf út mixtape-ið Going to California árið 2011 og þó nokkrar smáskífur frá 2010 til 2016. Riley samdi aragrúa laga fyrir hátt í sextíu heimsfræga tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Tinie Tempah, Ellie Goulding, Jessie J, Iggy Azalea, Usher, Chris Brown, Trey Songz, Dua Lipa, Khalid, Khelani og David Guetta.
Bretland Erlend sakamál Tónlist Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Alsæla á Akranesi „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira