Ef þetta væri barnið þitt Arnar Kjartansson skrifar 8. júní 2026 14:00 Um daginn sá ég ræðu sem sat í mér. Jackie Goldberg, stjórnarformaður skólaumdæmisins í Los Angeles, stóð upp á opnum fundi sumarið 2023 eftir þriggja daga mótmæli fyrir utan Saticoy grunnskólann. Tilefnið var barnabók sem nefnir í einni setningu að sumir krakkar eigi tvær mömmur eða tvo pabba. Fáni var brenndur, slagsmál brutust út, lögregla þurfti að skerast í leikinn. Goldberg las bókina upphátt fyrir framan alla og spurði svo, grátklökk, hvað þrír dagar af öskri og hatri gerðu ungu hinsegin fólki. Þeir gerðu þau hrædd. Og það er nákvæmlega punkturinn. Ég ætla að spyrja ykkur að einu. Ykkur sem haldið úti herferðunum gegn hinsegin fólki. Ykkur sem hafið dregið börnin ykkar úr skóla af því að hinseginfáni var dreginn að húni. Ef þetta væri barnið þitt. Værir þú til í að það yrði lagt í ævilangt neteinelti? Ofsóknir frá öfgatrúarfólki? Þunglyndi, kvíða og allt hitt sem fylgir? Eða viltu barninu þínu allt það besta? Því það er það sem þið kallið yfir börn annarra. Það er ekki flóknara en þetta. Dyggðarflöggun öfgahægrisins er sorgleg. Ekki af því að ég er ósammála ykkur. Ekki af því að ég lít niður á ykkur. Ekki af því að þetta sé pólitík. Heldur af því að svona málflutningur hefur afleiðingar sem þið sjáið aldrei sjálf. Ég veit dálítið um þær afleiðingar. Ég er með Ichthyosis og lít ekki út eins og aðrir. Ég hef þolað skammir, niðurlægingu og afmennsku í sinni verstu mynd, og ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef verið kallaður afmyndaður eða monster. Ég óska engum þess. Ekki einu sinni ykkur. Og tölurnar tala sínu máli. Andleg og líkamleg heilsa hinsegin fólks mælist verri en annarra, það sýnir ný rannsókn Landlæknis, Reykjavíkurborgar og Samtakanna ’78. Trans fólk er margfalt líklegra til að íhuga og reyna sjálfsvíg. Þetta er ekki uppspuni og þetta er ekki tilfinningasemi. Þetta er veruleiki sem börn eru að lifa, á meðan þið vælið yfir fána á skólalóð. Svo ég spyr aftur. Viltu barninu þínu allt það besta? Þá gildir það svo sannarlega um aðra. Höfundur er viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar