Gerðu það sem ég segi, ekki það sem ég geri! Guðni Freyr Öfjörð skrifar 8. júní 2026 12:03 Ég fæ stundum áhugaverðar pælingar og ein af þeim er þessi. Margir dyggustu talsmenn þess að halda Reykjavík og nágrenni algjörlega hönnuðu út frá þörfum einkabílsins, með tilheyrandi malbiksflæmi, mislægum gatnamót, fleiri akreinum, og risavöxnum gatnamótum elska ekkert meira en að eyða sumarfríinu í rómantískum, þéttbýlum evrópskum borgum. Í frínu er gengið á milli kaffihúsa í París, Barcelona eða Kaupmannahöfn þar sem bílar hafa vikið fyrir gangandi vegfarendum, almenningssamgöngum og iðandi mannlífi. En heima fyrir er barist hatramlega gegn þéttingu byggðar, Borgarlínu, stórbættum hjólainnviðum og auknu valfrelsi í samgöngum á þeim forsendum að það sé verið að „þröngva“ einhverju upp á fólk. Ég veit ekki með ykkur, en það er ákveðin kaldhæðni fólgin í því að mæra mannlífið sem skapast þar sem bíllinn er ekki í fyrirrúmi, en vilja svo ekki innleiða sömu hugmyndafræði á heimaslóðum. Veðrið er heldur engin afsökun, því borgir eins og Helsinki, Ósló, Montreal og fleiri eru með miklu harðari og kaldari vetur en Reykjavík, en samt með hágæða almenningssamgöngur og öfluga hjólainnviði, göngugötur og mannlíf Svo er það blessuð krónan og evran Röksemdafærslan fyrir krónunni er oft sú að hún sé nauðsynlegt fullveldistæki og sveigjanleg fyrir hagkerfið. En hver er raunveruleikinn? Fyrir okkur almenning er það þannig að við búum við sveiflur, verðbólgu, háa vexti og gengisfall sem bítur mest í veski venjulegs launafólks.Fyrir stórfyrirtæki, stórútgerðina og útflutninginn, sem sagt stærstu fyrirtækin á Íslandi, og oft þau sömu og tala mest fyrir ágæti krónunnar, er staðan önnur. Þau gera upp bókhaldið sitt að mestu í evrum og eitthvað í dollurum og taka lán erlendis á miklu betri kjörum. Þau eru í raun stökkvuð út úr krónuhagkerfinu á meðan almenningur situr eftir í því. Þess vegna fór ég svo mikið að hugsa um þetta „gerðu það sem ég segi, ekki það sem ég geri“ mynstur. Það á að verja ákveðna hugmyndafræði og hagsmuni út á við. Annars vegar krónuna, og hins vegar bílinn, ásamt öllu viðskiptamódelinu í kringum hann eins og olíufélögin, tryggingafélögin, bílalánin, bílaumboðin og verktakana eða malbikunarfyrirtækin sem græða á malbikinu. Þessu er haldið fram sem táknum um frelsi og sjálfstæði, en á sama tíma nýtur sami hópur þess að flýja þann raunveruleika, hvort sem það er í fríinu eða í viðskiptalífinu. Höfundur er pírati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar