Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. júní 2026 14:55 Faðir í vesturbæ Reykjavíkur sagði farir sínar ekki sléttar af för yfir Hringbraut með barni sínu. Vísir/Vilhelm Hurð skall nærri hælum á Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur gær þegar bíl var ekið í veg fyrir gangandi vegfarendur á leið yfir götuna við Hofsvallagötu. Lögregla biðlar til ökumanna um að sýna gangandi vegfarendum virðingu og hlýta rauðum ljósum.
Það var faðir í vesturbænum sem greindi frá atvikinu á íbúahópi Vesturbæjarins á Facebook. Þar lýsir hann því að hann hafi verið í smá áfalli í gær þegar hann fylgdi dóttur sinni á hjóli yfir Hringbraut við Hofsvallagötu. „Við leggjum af stað á grænu ljósi sem verður rautt á leiðinni en það er bíll sem keyrir í veg fyrir okkur og annan hjólara og kallar bara einfaldalega að það sé rautt á gangandi. Ef við hefðum verið örlítið hraðari hefði hann einfaldlega keyrt á okkur.“ Hann segist hafa lent í svipuðu atviki á Hringbraut fyrr í vikunni þegar hann fór yfir gönguljós Hringbrautar við Grund. Þá hafi klárlega verið komið rautt ljós á bíla og grænt ljós á gangandi. „En einn bíll gefur vel í „til að ná ljósinu“ en sem betur fer heyrði ég í honum .... Svo horfði ég hann stoppa á rauðu ljósi við bakaríið.“ Gömul saga og ný Árni Friðleifsson yfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að frásögnin af Hringbraut sé því miður gömul saga og ný. Örfá ár séu síðan hámarkshraðinn hafi verið lækkaður á götunni í 40 km en það var gert árið 2019 eftir ítrekaðar fréttir af árekstrum á götunni. „Því miður þá eru ökumenn að keyra of mikið yfir á rauðu ljósi og við í lögreglunni getum ekki verið alltaf alls staðar, þó ég væri glaður til í það,“ segir Árni. Hann segir að á stórum gatnamótum þar sem lögregla sé með myndavélavöktun líkt og á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjabakka fari einungis örfáir yfir á rauði ljósi, þrír til fimm af 24 til þrjátíu þúsund ökumönnum sem fari yfir gatnamótin eina helgi. „Maður er farinn að hallast að því að þetta sé einbeittur brotavili hjá fólki að fara yfir, en svo passar það sig þar sem það veit að er myndavélavöktun til staðar. Við sjáum þetta líka þar sem eru hraðamyndavélar, þannig að okkar svar er að það ætti að stórefla myndavélavöktun en þar kemur Vegagerðin og Reykjavíkurborg inn í þetta.“ Árni segir það hafa gefið góða raun að lækka hámarkshraðann á Hringbraut. Gatan sé umferðarþung gata en Árni segir fleira þurfi að koma til líkt og hraðahindranir og þrengingar. „En við hvetjum ökumenn til að sýna gangandi og hjólandi vegfarendum tillitssemi. Nú eru allir komnir út, krakkar komnir á reiðhjól og þetta snýr eingöngu að ökumönnum og bílum, því ef þú ert á bíl sem er kannski tvö tonn og lendir á óvörðum vegfarenda, þá þarf oft ekki að spyrja að leikslokum.“
Umferð Umferðaröryggi Reykjavík Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira