Málverkið tilbúið, en hver hélt á penslinum? Halla Björk Vigfúsdóttir skrifar 4. júní 2026 12:32 Á síðasta ári hefur átt sér stað hljóðlát en djúpstæð breyting innan veggja Nóa Síríusar. Það sem hófst sem tilraunaverkefni í samstarfi við Vinnumálastofnun hefur þróast í lifandi dæmi um hvað gerist þegar fyrirtæki ákveður að endurhugsa hugmyndir sínar um getu, virði og þátttöku. Verkefnið sem byggir á svokallaðri atvinnu með stuðningi (AMS), miðar að því að opna dyr fyrir einstaklinga sem hafa ekki áður fengið raunverulegt tækifæri á vinnumarkaði vegna frábrugðinnar getu og eiginleika. Þegar að ég tók við störfum Inngildandi verkstjóra, mætti verkefnið töluverðum efasemdum innan fyrirtækisins. Margir starfsmenn töldu að einstaklingarnir þyrftu stöðuga aðstoð/eftirfylgni og gætu ekki sinnt hefðbundnum störfum. Geta þeirra var sem tilbúið málverk, málað af hendi róttækra fordóma sem viðhaldast í samfélaginu sem í kjölfarið leiddi til þess að verkefni sem falin voru þessum einstaklingum voru einangrandi og einföld. Þegar að ýtt var eftir fjölbreyttari tækifærum, kom vart sá dagur að hópurinn lenti ekki á veggjum setningana: „Þau geta þetta ekki“ „Þetta er of flókið“ „Við höfum reynt þetta áður og það gekk ekki“ Erfiðasta hindrunin var því ekki geta þessara starfsmanna, eins og margir töldu að myndi vera, heldur var það menning og viðhorf sem við höfum því miður vanist að starfa og lifa í. Í sumum aðstæðum var þetta misráðin umhyggja, hræðslan við að drekkja þessum einstaklingum í verkefnum sem talin voru þeim ofviða, hræðsla við mistök sem þeir gætu gert eða hreinlega hræðsla við meiðsli, sem takmarkaði tækifærin sem þeim voru gefin. Lykillinn að árangri var einfaldlega að sýna fram á að geta þessara starfsmanna var margfalt meiri heldur en að flestum hefði grunað. Smátt og smátt með einföldum en áhrifaríkum lausnum, eins og sjónrænu skipulagi, breyttum vinnuferlum og auknum stuðningi í samskiptum, gátu starfsmenn tekið að sér flóknari verkefni og unnið sjálfstætt. Þessi verkfæri nýtast öllum, aðgengi að verkefnum og auðveldun þeirra er í þágu allra. Við nýttum götin þegar að veikindi urðu, ég steig inn í þær stöður með starfsmann úr mínum hóp mér við hlið, dró svo úr stuðning þangað til að starfsmaður gat starfað sjálfstætt og áður en við vissum af var starfskraftur þeirra eftirsóknarverður. Hópurinn varð hluti af heildinni og fór að hafa raunveruleg áhrif á framleiðni Nóa Síríusar. Í dag starfa fimm einstaklingar í hópnum, þar af sinna þrír heilum stöðugildum í mismunandi deildum. Starfsmennirnir hafa öðlast aukið sjálfstæði, félagsleg tengsl og virka þátttöku í daglegu starfi. Áhrifin á framleiðslu hafa einnig verið jákvæð, álag hefur minnkað og skilvirkni aukist. Eitt skýrasta merki um viðhorfsbreytingu innan fyrirtækisins var þegar stjórnendur fóru að keppast um að fá starfsmenn úr hópnum til liðs við sig. Verkefnið hefur einnig haft víðtækari áhrif á vinnustaðamenningu. Samskipti hafa batnað, starfsánægja aukist og fjölbreytileiki er orðinn sýnilegur styrkleiki fyrirtækisins. Auk þess hefur verið unnið að því að styðja erlenda starfsmenn með fræðslu um íslenskt samfélag, tungumál og kerfi, en það eykur þátttöku þeirra, inngildingu og öryggi. Inngilding er ekki góðgerðarstarfsemi, hún er skynsamleg stefna og hún er fjárfesting í fólki og framtíð. Spurningin er því ekki lengur hvort fyrirtæki hafi efni á að vera inngildandi. Spurningin er: hafa þau efni á að vera það ekki? Höfundur er þroskaþjálfi og Inngildandi verkstjóri hjá Nóa Síríus Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar