Sundurtætt eftirlit – opið bréf til alþingismanna Sesselja María Sveinsdóttir skrifar 4. júní 2026 06:31 Í dag virkar heilbrigðiseftirlit á Íslandi þannig að einn eftirlitsaðili (heilbrigðisfulltrúi) fer í eftirlit í leikskóla, veitingastaði, kaffihús, skemmtistaði, hótel, bensínstöðvar, matvöruverslanir og sundlaugar svo fátt eitt sé nefnt. Í eftirlitinu er farið yfir starfsemina frá A til Ö í sömu heimsókninni. Sami fagaðilinn skoðar matvælaöryggi, húsnæði, búnað, mengunarvarnir og hollustuhætti. Þetta er skilvirkt, þetta sparar tíma og rekstraraðilinn fær eina skýrslu og einn reikning. En nú á að breyta þessu í nafni „einföldunar“. Ef tvö umdeild frumvörp, sem nú liggja fyrir Alþingi, verða samþykkt (um stofnun Atvinnuvegastofnunar annars vegar og einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum hins vegar), verður þetta eftirlitskerfi tætt í sundur. Í stað þess að fá eitt eftirlit til sín mun rekstraraðili fá 2-3 eftirlitsaðila úr mismunandi áttum: Stofnun atvinnuveganna (ríkið): Mætir til að hafa eftirlit með matvælaöryggi, húsnæði og búnað m.t.t. matvælastarfsemi. Umhverfis- og orkustofnun (ríkið): Mætir á öðrum tíma til að hafa eftirlit með hollustuháttum, húsnæði, loftgæðum og mengunarvörnum. Viðkomandi sveitarfélag: Mætir svo til að fylgja eftir sorpmálum og úrgangi. Nú reynir á Alþingi að greina þessi áform í þaula og vonandi stöðva, því hér stefnir í óefni. Fyrir litla sjoppu á landsbyggðinni eða veitingastað í Reykjavík þýðir þetta aukið flækjustig, fleiri eftirlitsheimsóknir og fleiri reikninga. Það þarf nefnilega að fjármagna þrjú ólík eftirlitskerfi í stað eins. Að sjálfsögðu má betrumbæta núverandi kerfi og íhuga aðrar leiðir til að ná betri samræmingu og meiri skilvirkni, en það verður ekki gert með því að eyðileggja það sem fyrir er og tæta í sundur. Ágætu alþingismenn, staldrið við áður en þið samþykkið þessa dýru og flóknu miðstýringu. Höfundur er matvælafræðingur, starfandi heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og fyrrum starfsmaður hjá Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og Hollustuvernd ríkisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Í dag virkar heilbrigðiseftirlit á Íslandi þannig að einn eftirlitsaðili (heilbrigðisfulltrúi) fer í eftirlit í leikskóla, veitingastaði, kaffihús, skemmtistaði, hótel, bensínstöðvar, matvöruverslanir og sundlaugar svo fátt eitt sé nefnt. Í eftirlitinu er farið yfir starfsemina frá A til Ö í sömu heimsókninni. Sami fagaðilinn skoðar matvælaöryggi, húsnæði, búnað, mengunarvarnir og hollustuhætti. Þetta er skilvirkt, þetta sparar tíma og rekstraraðilinn fær eina skýrslu og einn reikning. En nú á að breyta þessu í nafni „einföldunar“. Ef tvö umdeild frumvörp, sem nú liggja fyrir Alþingi, verða samþykkt (um stofnun Atvinnuvegastofnunar annars vegar og einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum hins vegar), verður þetta eftirlitskerfi tætt í sundur. Í stað þess að fá eitt eftirlit til sín mun rekstraraðili fá 2-3 eftirlitsaðila úr mismunandi áttum: Stofnun atvinnuveganna (ríkið): Mætir til að hafa eftirlit með matvælaöryggi, húsnæði og búnað m.t.t. matvælastarfsemi. Umhverfis- og orkustofnun (ríkið): Mætir á öðrum tíma til að hafa eftirlit með hollustuháttum, húsnæði, loftgæðum og mengunarvörnum. Viðkomandi sveitarfélag: Mætir svo til að fylgja eftir sorpmálum og úrgangi. Nú reynir á Alþingi að greina þessi áform í þaula og vonandi stöðva, því hér stefnir í óefni. Fyrir litla sjoppu á landsbyggðinni eða veitingastað í Reykjavík þýðir þetta aukið flækjustig, fleiri eftirlitsheimsóknir og fleiri reikninga. Það þarf nefnilega að fjármagna þrjú ólík eftirlitskerfi í stað eins. Að sjálfsögðu má betrumbæta núverandi kerfi og íhuga aðrar leiðir til að ná betri samræmingu og meiri skilvirkni, en það verður ekki gert með því að eyðileggja það sem fyrir er og tæta í sundur. Ágætu alþingismenn, staldrið við áður en þið samþykkið þessa dýru og flóknu miðstýringu. Höfundur er matvælafræðingur, starfandi heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og fyrrum starfsmaður hjá Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og Hollustuvernd ríkisins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar