Lífið

Leik­ritið eigi sér­stak­lega erindi nú

Lovísa Arnardóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa
Sigsteinn og Þórunn með litunum í Litalandi.
Sigsteinn og Þórunn með litunum í Litalandi. Vísir/Sigurjón

Sýningar hjá Leikhópnum Lottu eru orðnar fastur liður í sumarfríi margra fjölskyldna. Leikhópurinn frumsýndi leiksýninguna Litaland í dag.

Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar. Sýningin er frumsamin og um tíu ára gömul.

„Litaland er saga um litina, grunnlitina, gulan, bláan og rauðan og þetta er saga sem á vel við í dag,“ segir Sigsteinn Sigurbergsson, leikstjóri sýningarinnar.

Bjarki Sigurðsson fréttamaður ræddi við Sigstein og Þórunni Lárusdóttur leikstjóra í kvöldfréttum Sýnar. Þórunn sagði ýmisleg ævintýri eiga sér stað í Litalandi sem komi á óvart og ekki. Hún segir leikritið eiga vel við í dag því það taki á áskorunum sem komi við „litablöndun“.

Þau segja stemninguna hafa verið frábæra á fyrsta sýningardegi og veðrið leikið við þau og þurrt meðan á sýningunni stóð.

Sigsteinn er í fyrsta sinn í tuttugu ára sögu leikhópsins ekki að leika í sýningunni heldur að leikstýra sýningunni. Hann segir skrítið að vera í þessari stöðu núna og að hann sakni þess en hann ætli að nýta tækifærið og rifja upp gamla takta í öðrum verkefnum á meðan.


Tengdar fréttir

„Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“

Leikhópurinn Lotta fær minna en milljón greitt árlega frá Spotify fyrir spilanir. Hópurinn er með um 35 þúsund hlustendur á síðasta ári og tæpar þrjár milljónir spilana á Spotify þar hægt er að hlusta á öll leikrit hópsins. Leikhópurinn hefur ekki getað sett upp nýja sýningu síðustu ár og hefur þess í stað endurnýtt eldri leikrit. Anna Bergljót Thorarensen, einn stofnenda hópsins, segir ástæðuna fjárhagslega.

Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar

Rappsöngleikurinn Ormstunga fékk tólf tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, þetta árið. Harmleikurinn Óresteia fékk tíu tilnefningar og Galdrakarlinn í Oz er í þriðja sæti yfir fjölda tilnefninga með sex slíkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.