Hver á að halda utan um hægri vænginn? Martha Árnadóttir skrifar 3. júní 2026 15:33 Í áratugi gegndi Sjálfstæðisflokkurinn sérstöðu í íslenskum stjórnmálum. Hann var ekki aðeins stærsti flokkur landsins heldur líka sá flokkur sem sameinaði ólíka strauma á hægri vængnum. Frjálslynda markaðssinna, íhaldsmenn, atvinnurekendur, dreifbýlisfólk og borgarbúa. Afleiðingin var sú að lítið rými myndaðist fyrir sérstakan flokk hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn. Þessi staða er ekki sjálfgefin. Víða um Evrópu hafa hefðbundnir hægri flokkar veikst og tapað fylgi til nýrra flokka sem byggja á óánægju, sundrungu og andstöðu við frjálslyndi. Þegar stórir og ábyrgir hægri flokkar missa tengsl við kjósendur sína myndast pólitískt tómarúm sem róttækari öfl ná að fylla. Þess vegna er spurningin um framtíð Sjálfstæðisflokksins stærri en framtíð eins stjórnmálaflokks. Hún snýst um hvernig hægri vængur íslenskra stjórnmála þróast á næstu árum. Hvað breyttist? Í áratugi naut Sjálfstæðisflokkurinn stuðnings fólks úr öllum stéttum samfélagsins. Hann talaði fyrir framtaki, ábyrgð og tækifærum fyrir einstaklinga. En á síðustu árum hefur myndin sem blasir við mörgum verið önnur. Í stað þess að standa vörð um almanna hagsmuni hefur flokkurinn of oft virst vera í grímulausri hagsmunagæslu fyrir fáa og valdamikla hópa - og það sem verra er, forystufólk flokksins virðist ekki taka eftir því - lætur eins ekkert sé. Sjálfstæðisflokkurinn þarf því að svara grundvallarspurningu: Fyrir hverja er hann til? Ef flokkurinn vill vera breiður þjóðmálaflokkur þarf hann að höfða aftur til millistéttarinnar, unga fólksins sem er að stíga inn í alvöru lífsins, breiða hópsins sem er í lífsbaráttunni miðri og allra þeirra sem telja að frjálslyndi og efnahagsleg tækifæri eigi að vera fyrir alla. Sterkur Sjálfstæðisflokkur þarf ekki að þýða að allir séu sammála honum. En sterkur og ábyrgur hægri flokkur hefur mikilvægu hlutverki að gegna í lýðræðinu. Hann getur tekið við og unnið úr óánægju kjósenda innan lýðræðislegrar hefðar í stað þess að sú óánægja leiti í róttækari farveg. Saga síðustu áratuga bendir raunar til þess að eitt af því sem hélt aftur af myndun öflugra flokka hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn hafi einmitt verið styrkur hans. Ef sá styrkur hverfur og flokknum tekst ekki að endurnýja sig, gæti pólitíska landslagið breyst hraðar - til hins verra - en margir gera sér grein fyrir. Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar