Sjálfbær landbúnaður er öryggismál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 3. júní 2026 09:01 Í ljósi komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er mikilvægt að umræðan snúist ekki aðeins um stofnanir, samningaferli og upphrópanir um kosti eða galla Evrópusambandsins. Hún verður líka að snúast um það sem er nær daglegu lífi okkar: matvælin sem við kaupum, fjölskyldubúin um land allt, störfin í sveitunum, byggðirnar og getu Íslands til að framleiða eigin mat á tímum óvissu. Sérstakar aðstæður kalla á sérstakt kerfi Það er ekki tilviljun að við höfum byggt upp óhefðbundið kerfi fyrir landbúnað. Við búum við krefjandi veðurfar, styttra vaxtartímabil, lítinn heimamarkað og hærri framleiðslukostnað en flestar aðrar Evrópuþjóðir. Þess vegna höfum við notað blöndu af tollvernd og beinum stuðningi til að halda uppi innlendri matvælaframleiðslu. Beini stuðningurinn skiptir máli í kjötframleiðslu, mjólkurframleiðslu og garðyrkju. En tollverndin er líka lykilatriði. Hún er ein af forsendunum fyrir því að íslensk framleiðsla geti staðið undir sér við íslenskar aðstæður. Veikari tollvernd breytir leiknum Ef núverandi tollvernd veikist eða fellur niður breytast forsendur íslensks landbúnaðar. Þá þarf íslenskur bóndi ekki aðeins að keppa við innfluttar vörur heldur einnig við framleiðslu frá löndum þar sem aðstæður eru aðrar, markaðir stærri og stærðarhagkvæmni meiri. Áhrifin kæmu líklega sérstaklega hart niður á fjölskyldubúunum sem hafa borið uppi landbúnað víða um land. Stærri aðilar geta frekar aðlagast og hagrætt. Minni búin hafa ekki sama svigrúm og þegar þrengir að eru það gjarnan þau sem hverfa fyrst. Spurning um eðli landbúnaðarins Við þetta breytist sjálfsmynd íslensks landbúnaðar. Spurningin verður ekki aðeins hvort einhver framleiðsla haldist áfram, heldur hverjir framleiða, hvar framleiðslan fer fram og hvort sveitirnar haldi áfram að vera blómleg samfélög. Umfram allt verður spurningin hvort við verðum sjálfbær með tilliti til matvælaframleiðslu. Ef niðurfelling tolla leiðir til þess að fjölskyldubú veikjast en stærri rekstrareiningar taka við er það grundvallarbreyting sem þjóðin á rétt á að ræða áður en lengra er haldið. Hver er hinn raunverulegi kostnaður? Það er óábyrgt að halda því fram að neytendur fái einfaldlega lægra verð ef við göngum í Evrópusambandið. Reikningurinn getur orðið allt annar. Spurningarnar eru þessar: Hvað þýðir niðurfelling tolla í krónum talið fyrir íslenskan landbúnað? Hvaða búgreinar yrðu fyrir mestum áhrifum? Hver verða áhrifin á tekjur bænda, innlenda framleiðslu, störf í dreifðum byggðum og fjárfestingu? Hvað með fæðuöryggi, nýsköpun og sérstöðu Íslands? Ef bæta þyrfti skarðið með auknum stuðningi vaknar spurningin um kostnað ríkissjóðs. Væri hann fimm milljarðar á ári, tíu milljarðar eða jafnvel 15 til 20 milljarðar til að verja sambærilega framleiðslu og byggðafestu? Slíkar tölur þurfa að liggja fyrir áður en afstaða er tekin. Reynsla Norðurlanda og svigrúm til að bregðast við Reynsla annarra Norðurlanda gefur tilefni til umhugsunar. Svíar og Finnar þurftu sérstakar lausnir eftir inngöngu í Evrópusambandið. Sérstaða norðlægs landbúnaðar hverfur ekki við inngöngu. Þegar ríki gengur inn í sameiginlegt kerfi þarf það að semja um heimildir og stuðning, sem veltur á því hvað önnur ríki eru reiðubúin að samþykkja. Ef tollvernd veikist þyrfti að byggja upp annað stuðningskerfi. Þá verður að liggja fyrir hvernig það er fjármagnað, hverjir njóta þess og hvort það tryggi framleiðslu í öllum landshlutum. Fæðuöryggi og byggðafesta Fæðuöryggi er ekki gamaldags hugtak heldur eitt af lykilmálum samtímans. Óvissa í alþjóðamálum, truflanir í flutningum og sveiflur í aðfangakeðjum minna á að ekki er sjálfgefið að treysta á innflutning. Við slíkar aðstæður skiptir máli að Ísland geti framleitt eigin matvæli. Vitanlega getum við ekki framleitt allt og ekki alltaf á lægsta verði, en við verðum að framleiða nægilega mikið til að samfélagið sé sjálfbært þegar á reynir. Ef landbúnaður veikist um of töpum við ekki aðeins getu til eigin framleiðslu heldur einnig þekkingu, störfum, þjónustu og byggðafestu. Þess vegna þarf umræðan um ESB að vera heiðarleg. Hvað verður um tollverndina? Hvaða stuðning má veita? Verða heimildir varanlegar? Hver ber kostnaðinn? Og hvað kostar það til lengri tíma ef grundvöllur byggða brestur og innlend framleiðsla verður undir í alþjóðlegri samkeppni? Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta ekki aðeins um tolla eða stuðningskerfi, heldur um það hvort Ísland ætli áfram að vera land sem getur framleitt eigin matvæli. Eða ekki. Höfundur er bóndi og alþingsmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þórarinn Ingi Pétursson Landbúnaður Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun