Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Jakob Bjarnar skrifar 1. júní 2026 13:29 Ragnar Þór er staðgengilll mennta- og barnamálaráðherra. Svör hans kölluðu á þá einkunn af hálfu Jóns Péturs að hann hafi afhjúpað vanþekkingu á skólastarfi. Það þýddi ekki að auka álag á skóla með hægri en skera niður með þeirri vinstri. vísir/anton Brink/Vilhelm Jón Pétur Zimsen, Sjálfstæðisflokki, gerði fjárframlög ríkisins til framhaldsskóla að umfjöllunarefni í óundirbúnum fyrirspurnum. Til svara var Ragnar Þór Ingólfsson, staðgengill Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, en Jón Pétur taldi svör hans ekki margra fiska virði. „
Í drögum að nýrri fjármálaáætlun er ráðgert að fjárframlög til framhaldsskóla dragist saman um 7,1 prósent á næstu fimm árum, fari úr 53,2 milljörðum í 49,4 milljarða árið 2031,“ sagði Jón Pétur. Þetta er meiri niðurskurður en gert hafði verið ráð fyrir í fyrri áætlunum, að sögn Jóns, og kemur á þeim tíma sem stærstu árgangar Íslandssögunnar til þessa eru að hefja framhaldsskólanám. Að fjárfesta í framtíðinni með ofsaniðurskurði „Að baki er hrun í námsgetu og lestrarfærni ungmenna hér á landi í alþjóðlegum samanburði. Kennarar segja að líklega sé um mesta niðurskurð sem þegar vanfjármagnað framhaldsskólastig hefur séð áður, meiri en eftir bankahrunið 2008.“ Jón Pétur vitnaði í Guðjón Hrein Hauksson, formann Félags framhaldsskólakennara, sem telur að niðurskurðurinn muni bitna verulega á námi nemenda og til að mynda þurfi að skera niður námsbrautir og draga úr stoðþjónustu. „Gangi þetta eftir verða næstu ár óbærileg fyrir starfsfólk framhaldsskólanna. Félag framhaldsskólakennara hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlun þar sem niðurskurðurinn er gagnrýndur harðlega. Jón Pétur spurði hvernig hægt væri að tala um að fjárfest væri í framtíðinni með ofsaniðurskurði?vísir/vilhelm Hann er sagður grimmilegur og ganga beint gegn atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar sem var kynnt með pompi og prakt og samþykkt í síðasta mánuði og fari gegn fyrirheitum mennta- og barnamálaráðuneytisins um að fjárfesta í framtíð landsins, sem er skynsamleg ákvörðun,“ sagði Jón Pétur og spurði hvort þetta héti að fjárfesta í framtíð landsins? Hvernig væri hægt að vega að menntun og framtíðarlífsgæðum ungmenna með slíkum ofsaniðurskurði? Ragnar Þór sagði að verið væri að auka fjármagn á milli ára frá núgildandi fjármálaáætlun, það er um 1,3 milljarða fyrir 2027 og síðan um rúmlega milljarð fyrir 2028. Niðurskurðurinn varði fyrst og fremst fjárfestingarhliðina. „Það eru gríðarlega miklar fjárfestingar í gangi núna í kringum framhaldsskólana sem eru aðallega tengdar uppbyggingu fimm verknámshúsa. Það er að klárast í Breiðholti, við erum að fara af stað í Skagafirði og erum langt komin með samninga eða viljayfirlýsingar við þá skóla þar sem ákveðið var að byggja upp.“ Auka álag með vinstri en skera niður með hægri Að sögn Ragnars Þórs sneri þessi niðurskurður fyrst og fremst að fjárfestingarhliðinni eftir 2028. „En framlögin per nemanda, sem eru rúmar tvær milljónir, verða á pari við það út fjármálaáætlun, þ.e. hvað er greitt með hverjum nemanda til hvers skóla miðað við hvernig það var 2026. Ég myndi segja að það væri mjög djúpt í árinni tekið að tala um aðför að rekstri framhaldsskóla eða niðurskurð sem er úr hófi fram.“ Ragnar Þór Ingólfsson átti í vök að verjast þegar gamli skólastjórinn gekk á hann með fjárframlög til framhaldsskóla.vísir/anton brink Jón Pétur gaf lítið fyrir þessi svör. „Hæstvirtur ráðherra svarar hér en afhjúpar í raun vanþekkingu sína á skólastarfi. Það er alveg ljóst að í grunnskólum landsins var stefnan um skóla án aðgreiningar tekin upp án þess að jarðvegurinn hefði verið nógu vel undirbúinn.“ Nú sé ríkisstjórnin búin að innleiða svipuð lög þar sem sú stefna, skóli án aðgreiningar, er tekin upp í framhaldsskólunum. „Nýleg skýrsla sem sveitarfélögin gerðu fyrir grunnskólana segir að stærsti hluti kennaranna sé kominn á þann stað að finnast staðan óbærileg. Þetta kerfi er verið að flytja í boði ríkisstjórnarinnar beint inn í framhaldsskólann. Niðurskurðurinn er 7,1 prósent,“ sagði Jón Pétur og spurði hvernig væri hægt að réttlæta það að auka álagið í skólunum með hægri hendi og skera síðan niður með þeirri vinstri?
Alþingi Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Fjárlagafrumvarp 2026 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira