Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Kjartan Kjartansson skrifar 1. júní 2026 08:53 Enn einni flugferð Icelandair var aflýst vegna manneklu í morgun, þeirri tuttugust á tæpum mánuði. Myndin er úr safni. Vísir Ferð Icelandair til Zürich í Sviss var aflýst í morgun þar sem ekki tókst að manna hana flugmönnum. Flugfélagið hefur nú þurft að aflýsa tuttugu brottförum frá Keflavík síðasta mánuðinn vegna þess að flugmenn fást ekki til þess að selja frídaga sína.
Farþegavél Icelandair átti að fara í loftið frá Keflavíkurflugvelli klukkan 7:20 í morgun og fljúga til Zürich í Sviss. Ferðinni var hins vegar aflýst. Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, staðfestir að fluginu hafi verið aflýst vegna þess að flugmenn fengust ekki til ferðarinnar. Átján farþegaferðum og tveimur fraktferðum frá Keflavík hefur nú verið aflýst frá 5. maí samkvæmt upplýsingum Ásdísar. Þremur brottförum var aflýst í gær. Icelandair og flugmenn félagsins eiga í kjaraviðræðum. Flugmenn hafa ekki lýst yfir verkfalli eða formlegum aðgerðum en flugfélagið fullyrðir að flugmennirnir hafi tekið sameiginlega ákvörðun um að selja ekki frídaga sína líkt og þeir hafi gert í kjaradeilu árið 2014. Flugmenn hafa hafnað því og segja vandann liggja í því að Icelandair hafi byggt flugáætlun sína upp á þeirri forsendu að fyrirtækið gæti keypt frídaga af flugmönnum. Kjaradeilan er á borði ríkissáttasemjara en hann lagði á fjölmiðlabann. Síðast var fundað í kjaradeilunni á föstudag.
Icelandair Kjaramál Flug Sviss Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira