Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 11:05 Matvei Safonov varð Evrópumeistari í gærkvöld. Getty/MAURICE VAN STEEN Rússneski markvörðurinn Matvey Safonov varð Evrópumeistari með PSG í gærkvöld en það er kannski ekki hægt að segja að hann hafi átt mikinn þátt í sigrinum gegn Arsenal í úrslitaleiknum.
Safonov var eini leikmaðurinn í byrjunarliði PSG í gær sem ekki var í byrjunarliðinu fyrir ári síðan þegar liðið vann Inter 5-0 og varð Evrópumeistari í fyrsta sinn. Hann fylgdist þá með af varamannabekknum á meðan að Gianluigi Donnarumma hélt marki PSG hreinu. Í gærkvöld spilaði Safonov og varð meistari en varði þó ekki eitt einasta skot, í 120 mínútur og vítaspyrnukeppni. Kai Havertz kom Arsenal yfir með frábæru skoti úr afar þröngu færi snemma leiks. Þrátt fyrir að leikurinn hafi svo verið framlengdur og endað í vítaspyrnukeppni þá var þetta eina skiptið þar sem Safonov hefði mögulega getað varið skot. Fleiri skottilraunir Arsenal fóru nefnilega ekki á markrammann. Bæði víti liðsins sem fóru forgörðum í vítaspyrnukeppninni fóru ekki á markið. Eberechi Eze skaut framhjá og miðvörðurinn Gabriel skaut svo yfir úr lokaspyrnunni en hefði þurft að skora til að knýja fram bráðabana. David Raya hafði aðeins meira að gera í marki Arsenal en hann varði tvö skot í venjulegum leiktíma og eitt í framlengingunni, áður en hann varði svo eina af spyrnum PSG-manna í vítaspyrnukeppninni, auk þess að hafa gert vel í að verjast föstum fyrirgjöfum PSG, en það dugði ekki til. Eina markið sem Raya fékk á sig í venjulegum leiktíma kom af vítapunktinum, þegar Ousmane Dembélé jafnaði metin á 65. mínútu.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tengdar fréttir Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG Lögreglan í París handtók um 280 manns í gærkvöldi í átökum í París eftir sigur PSG gegn Arsenal í Meistaradeildinni. Um tuttugu þúsund manns söfnuðust saman á Champs-Elysées. 31. maí 2026 07:44 „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Mikel Arteta segist hafa verið meðvitaður um að ef úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni í kvöld, í úrslitaleik PSG og Arsenal í Meistaradeild Evrópu, þá yrðu helstu vítaskyttur Arsenal farnar af velli. 30. maí 2026 21:45 PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Franska stórveldið PSG varð í kvöld Evrópumeistari annað árið í röð með sigri á Arsenal í úrslitaleik í Búdapest. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni þar sem miðvörðurinn Gabriel skaut yfir úr fimmtu spyrnu Arsenal-manna. 30. maí 2026 14:32 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira
Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG Lögreglan í París handtók um 280 manns í gærkvöldi í átökum í París eftir sigur PSG gegn Arsenal í Meistaradeildinni. Um tuttugu þúsund manns söfnuðust saman á Champs-Elysées. 31. maí 2026 07:44
„Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Mikel Arteta segist hafa verið meðvitaður um að ef úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni í kvöld, í úrslitaleik PSG og Arsenal í Meistaradeild Evrópu, þá yrðu helstu vítaskyttur Arsenal farnar af velli. 30. maí 2026 21:45
PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Franska stórveldið PSG varð í kvöld Evrópumeistari annað árið í röð með sigri á Arsenal í úrslitaleik í Búdapest. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni þar sem miðvörðurinn Gabriel skaut yfir úr fimmtu spyrnu Arsenal-manna. 30. maí 2026 14:32