Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. maí 2026 13:35 Kamilla Einars, rithöfundur og starfsmaður Þjóðarbókhlöðunnar spyr sig hvar þjónustuskerðing safnsins muni enda. Vísir/Vilhelm Rithöfundur og bókavörður gagnrýnir harðlega fyrirætlanir stjórnenda Landsbókasafnsins sem ætla að ráða öryggisverði í stað bókavarða sem eiga að manna þriðju og fjórðu hæð Þjóðarbókhlöðunnar kvöld og helgar í haust. Hún segir að dregið hafi úr allri þjónustu á safninu en stjórnendur segja ástæðuna vera sparnaðarkröfu stjórnvalda.
Tilefnið er frétt mbl.is þar sem er rætt við Örn Hrafnkelsson landsbókavörð um breytingarnar. Þar kemur fram að öryggisverðir muni sinna vakt á þriðju og fjórðu hæð Þjóðarbókhlöðunnar í stað bókavarða, en áfram verði bókavörður á annarri hæð. Tilgangurinn sé að bæta öryggi gesta og starfsmanna og sé í takti við almenna þróun á bókasöfnum. Segist hann ekki hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu en segir að ákvörðunin sé rakin til 3,5 prósenta sparnaðarkröfu í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Spyr sig hvar aðhaldið muni enda Kamilla Einarsdóttir rithöfundur og bókavörður á Þjóðarbókhlöðunni vekur athygli á breytingunum í færslu á samfélagsmiðlum. Hún segir alla notendur safnsins þekkja hvernig dregið hafi úr allri þjónustu á safninu og nefnir nokkur dæmi. Nú eigi að draga enn meira úr þjónustu, meðal annars með breytingum á opnunartíma. Safnið í vesturbænum opnaði 1. desember 1994 eftir sameiningu Landsbókasafns Íslands og Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðunni. Vísir/Vilhelm „Samkvæmt þessari frétt mun þetta spara mikinn pening. Bókaverðir eru reyndar langlægst launuðu starfsmenn safnsins en með því að fækka þeim umtalsvert og lækka laun þeirra kvenna sem eftir eru með því að fækka vöktum þeirra þá næst sjálfsagt fram einhver sparnaðar,“ skrifar Kamilla á Facebook. Þar spyr hún hvort það sé virkilega vilji Loga Einarsson menningarmálaráðherra að Ísland sé með slakasta þjóðbókar-og háskólabókasafn í Evrópu? „Finnst honum það sæma þjóð sem gefur sig út fyrir að vera bókmenntaþjóð? eða gerir það alla vega svona á tyllidögum. Finnst nemendum í Háskóla Íslands allt í lagi að á sama tíma og það er verið að hækka skrásetningargjöldin hressilega, sé verið að draga úr þjónustu við þau? Ég á svo erfitt með að trúa því um Loga, sem er mikill bókmenntamaður, að honum finnist þetta ásættanlegt.“ Þrjár kynslóðir af bókavörðum í fjölskyldunni „Hvar ætlum við að enda þetta? Ætlum við að leggja þetta niður?“ spyr Kamilla sig í samtali við Vísi. Hún segir að sér hafi borið blóðið til skyldunnar að vekja athygli á málinu. „Amma var bókavörður, ég er bókavörður og dætur mínar eru bókaverðir. Þetta er í fjölskyldunni, ég varð að stíga upp. Bókasöfn skipta máli, við erum alltaf að stæra okkur af því að vera bókmenntaþjóð, hvernig getur það verið að miklu fátækari lönd en við geti samt boðið upp á miklu betri söfn?“ Hún bendir á að sami þjónustutími sé í landsbókasafni Færeyja, landi þar sem eigi heima 56 þúsund manns og 1200 stúdentar, versus 380 þúsund Íslendinga og fjórtán þúsund háskólanemar. Öryggisverðir, þeir bjóða ekki upp á sömu þjónustu og bókaverðir? „Nei, aldrei. Engin reynd manneskja myndi reyna að halda því fram að það væri mögulegt. Þetta er hluti af þróun sem hefur verið í gangi síðustu ár, þar sem þjónusta hefur verið minnkuð í öllum deildum. Það er ekkert sambærilegt safn í löndum sem við berum okkur saman við með svona litla þjónustu.“
Bókasöfn Bókmenntir Háskólar Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Sjá meira