Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Birgir Olgeirsson skrifar 26. maí 2026 17:13 Frá aðgerðum lögreglu á Kársnesi en sérsveitin var kölluð til. Á myndinni til hægri sést hvar maðurinn sem er í gæsluvarðhaldi var leiddur út úr húsinu í handjárnum. Samsett mynd Mennirnir sem komu við sögu í skotárásinni í Kópavogi á sunnudag þekktust og tilkynntu báðir málið til lögreglu. Lögregla telur málið einangrað atvik og hvorki tengjast skipulagðri glæpastarfsemi né uppgjöri í undirheimum.
Lögregla lagði hald á hálfsjálfvirka níu millimetra skammbyssu eftir skotárásina á Kársnesi í Kópavogi á sunnudag. Rannsakað er hvort vopnið hafi verið notað þegar maður var skotinn í höndina í íbúð við Hafnarbraut. Þetta er meðal þess sem komið hefur fram við rannsókn málsins, sem lögregla segir enn á frumstigi. Karlmaður um fertugt var handtekinn á vettvangi og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mennirnir tveir þekktust og segir lögregla einhver tengsl vera á milli þeirra. Báðir tilkynntu málið sjálfir til lögreglu; fyrst sá sem grunaður er um að hafa hleypt af skotinu og síðar maðurinn sem varð fyrir því. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsóknina miða að því að varpa ljósi á aðdragandann og hvort fleiri hafi komið að málinu. „Rannsóknin er á viðkvæmu stigi ennþá. Við erum að safna helstu gögnum og byrja að fara yfir þau,“ segir Ævar. Tilkynning barst lögreglu um skothvell um hádegisbil á sunnudag. Skömmu síðar var lögreglu einnig gert viðvart um blóðugan mann með handklæði utan um særða hönd í bakaríinu Brikk, sem er í tveggja mínútna göngufjarlægð frá fjölbýlishúsinu. Maðurinn hafði orðið fyrir skoti í höndina en var ekki talinn í lífshættu. „En engu að síður þá er þetta atvik mjög alvarlegt og hefði getað farið mun verr,“ segir Ævar. „Það var lagt hald á vettvangi á níu millimetra hálfsjálfvirka skammbyssu og nú liggur fyrir að það þarf að rannsaka það vopn til þess að ganga úr skugga um að það sé sannarlega vopnið sem hafi verið notað,“ segir Ævar. Vopnið verður að öllum líkindum sent erlendis í skotferilsrannsókn. Lögregla vill ekki upplýsa hversu mörgum skotum var hleypt af og segir það enn til rannsóknar. Ævar segir ekkert benda til þess að skotárásin tengist skipulagðri glæpastarfsemi eða uppgjöri í undirheimum. „Ég myndi telja þetta einangrað atvik. En engu að síður þá vil ég koma inn á það líka að svona vopn eiga ekki að vera í höndum einstaklinga sem eru hvorki í ástandi eða hafa þjálfun eða réttindi til þess,“ segir Ævar. Rannsóknin beinist nú meðal annars að samskiptum mannanna fyrir skotárásina, ástandi þeirra á vettvangi og því hvort einhverjir aðrir hafi komið að málinu. Ævar segir einhverja ölvun hafa verið á vettvangi en vill ekki tjá sig nánar um það að svo stöddu.
Lögreglumál Kópavogur Tengdar fréttir Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Karlmaður var leiddur út í járnum eftir umfangsmikla lögregluaðgerð við Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi síðdegis í dag. 24. maí 2026 15:53 Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Maður gekk blóðugur inn í bakaríið Brikk við Hafnarbraut á Kársnesi upp úr hádegi í dag með handklæði vafið um særða hönd. Hann var vankaður að sögn sjónarvotta og sagðist hafa verið skotinn í höndina. 24. maí 2026 15:51 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira
Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Karlmaður var leiddur út í járnum eftir umfangsmikla lögregluaðgerð við Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi síðdegis í dag. 24. maí 2026 15:53
Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Maður gekk blóðugur inn í bakaríið Brikk við Hafnarbraut á Kársnesi upp úr hádegi í dag með handklæði vafið um særða hönd. Hann var vankaður að sögn sjónarvotta og sagðist hafa verið skotinn í höndina. 24. maí 2026 15:51