Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Valur Páll Eiríksson skrifar 25. maí 2026 21:06 Joakim Mæhle var skúrkurinn í kvöld. Swen Pförtner/picture alliance via Getty Images Paderborn mun leika í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta á næstu leiktíð á kostnað Wolfsburg sem er fallið úr deildinni eftir þriggja áratuga veru. Paderborn vann umspilsleik liðanna 2-1 í kvöld.
Liðin áttust við á heimavelli Paderborn í síðari leik umspilsins en fyrri leiknum í Wolfsburg hafði lokið með markalausu jafntefli. Gestirnir byrjuðu betur þar sem framherjinn ungi Dzenan Pejcinovic veitti Wolfsburg forystuna eftir aðeins þriggja mínútna leik. Daninn Joakim Mæhle fékk svo að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar aðeins 14 mínútur voru liðnar. Wolfsburg var því manni færra það sem eftir lifði leiks. Paderborn stýrði leiknum frá A til Ö með ellefu leikmenn gegn tíu og Wolfsburg átti ekki aðra marktilraun sína í leiknum fyrr en undir lokin. Filip Bilbija jafnaði sjö mínútum fyrir leikhlé og Paderborn sótti hart að gestunum allan síðari hálfleikinn án þess að koma inn marki. Christian Eriksen er fyrirliði Wolfsburgar sem þurfti að þola þungt tap og þar af leiðandi fall.Christof Koepsel/Getty Images Framlengja þurfti leikinn og þar skoraði Laurin Curda sigurmarkið á hundruðustu mínútu. Paderborn mun því spila í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa lent í þriðja sæti þýsku 2. deildarinnar í vetur. Liðið hefur tvisvar spilað í úrvalsdeildinni en fallið beint niður aftur í bæði skipti, tímabilin 2014-15 og 2019-20. Wolfsburg, sem er í eigu bílaframleiðandans Volkswagen, fellur hins vegar í næst efstu deild eftir 30 ára veru í þeirri efstu. Liðið komst upp veturinn 1996-97. Liðið varð þýskur meistari tímabilið 2008-09 undir stjórn Felix Magath en þá leiddu Grafite og Edin Dzeko sóknarlínu liðsins og skoruðu samanlagt 54 deildarmörk þá leiktíðina. Í því liði voru einnig Ítalarnir Andrea Barzagli og Cristian Zaccardo, Diego Benaglio og Zvjezdan Misimovic. Edin Dzeko var hluti af Þýskalandsmeistaraliði Wolfsburgar fyrir 16 árum. Nú er liðið fallið en Dzeko á leið upp með Schalke.Mynd/Nordic Photos/Bongarts Dzeko komst upp í efstu deild í vetur en hann lék með Schalke sem varð 2. deildarmeistari. Elversberg fer einnig, ásamt Schalke og Paderborn, upp í úrvalsdeildina.
Þýski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira