Upp­gjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugar­dal

Gunnar Egill Daníelsson skrifar
Stjarnan er komin aftur á sigurbraut.
Stjarnan er komin aftur á sigurbraut. vísir / guðmundur

Stjarnan gerði góða ferð í Laugardal og lagði Þrótt Reykjavík að velli, 1-0, í 6. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í kvöld. Með sigrinum fór Stjarnan upp í fimmta sæti og er þar með átta stig en Þróttur er sæti ofar með níu.

Þrátt fyrir markaleysi í fyrri hálfleik voru bæði lið hársbreidd frá því að brjóta ísinn í honum. Snædís María Jörundsdóttir fékk besta færi Stjörnunnar í fyrri hálfleik, á 13. mínútu, þegar hún lék á Sóleyju Maríu Steinarsdóttur hægra megin í vítateignum, ætlaði að leggja boltann niður í fjærhornið en Mollee Swift var eldsnögg niður og varði frábærlega.

Fimm mínútum síðar var Þróttur nálægt því að ná forystunni þegar Eva Marie Wirtz reyndi að hreinsa frá en setti boltann í stöngina á eigin marki áður en Jakobína Hjörvarsdóttir bjargaði í horn með góðri tæklingu á Alexiu Czerwen sem hugðist fylgja á eftir og leggja boltann í netið.

Eftir markalausan fyrri hálfleik var það Stjarnan sem náðu forystunni eftir klukkutíma leik. Andrea Mist Pálsdóttir tók þá hornspyrnu frá vinstri á nærstöngina þar sem boltinn virtist fara af Evu Marie Wirtz eftir mikla baráttu í markteignum.

Eftir markið var Stjarnan líklegri til þess að bæta við mörkum heldur en Þróttur var að jafna metin og sigldi að lokum einstaklega sterkum útisigri í höfn.

Atvik leiksins

Fyrsta skot leiksins á fjórðu mínútu var athyglisvert. Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir ætlaði að þruma að marki rétt fyrir utan vítateig en það fór ekki betur en svo að úr varð nokkurs konar skipting yfir á hægri kantinn. María Eva Eyjólfsdóttir náði hins vegar ekki að halda boltanum inni á vellinum og skot Sigríðar Theódóru endaði því í innkasti.

Stjörnur og skúrkar

Jakobína Hjörvarsdóttir var sem klettur í miðri vörn Stjörnunnar ásamt fyrirliðanum Önnu Maríu Baldursdóttur. Öll varnarlína Stjörnunnar var reyndar geysilega öflug þar sem Telma Steindórsdóttir og Eva Marie Wirtz stóðu vaktina vel í bakvörðunum, sérstaklega varnarlega, og skoraði Wirtz sigurmarkið. Bridgette Skiba var þá flott í markinu.

Í svo lokuðum leik er ekki sjálfgefið að útnefna skúrka en sóknartengiliðir beggja liða, Birna Jóhannsdóttir hjá Stjörnunni og Þórdís Elva Ágústsdóttir hjá Þrótti, létu lítið fyrir sér fara og komust erfiðlega í takt við leikinn.

Dómarinn

Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson leysti verkefni sitt prýðilega ásamt teymi sínu. Ekki var ég sammála öllum aukaspyrnudómum hans í fyrri hálfleik en það var ég í þeim síðari. Leikurinn fékk að fljóta vel og ekki yfir miklu að kvarta.

Stemning og umgjörð

Það eru engir betri en Þróttarar að mæta á heimaleiki í Bestu deild kvenna og er það vel. Nokkrir ungir piltar léku á trommur og gerðu sitt besta til að halda uppi stuðinu. Umgjörðin er flott hjá Þrótturum og eins og áður er fjölmennt á sólarpallinn við aðganginn að stúkunni, sem lífgar upp á allt saman.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira