Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 08:00 Cristian Romero er fyrirliði Tottenham en ætlar ekki að vera á vellinum þegar liðið spilar um að bjarga sér frá falli. Getty/George Wood Tottenham gæti fallið úr ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn eftir að hafa verið samfleytt í efstu deild frá árinu 1978. Fyrirliðinn ætlar ekki að vera viðstaddur.
Argentínski fyrirliðinn Cristian Romero hefur ekki getað spilað með Tottenham eftir að hann meiddist í hné í 1-0 tapi gegn Sunderland í apríl. Tottenham fellur á sunnudaginn ef liðið tapar gegn Everton á heimavelli og West Ham tekst á sama tíma að vinna Leeds á heimavelli. Þegar lokaumferðin fer fram verður Romero hins vegar víðs fjarri Englandi, í rúmlega 11.000 kílómetra fjarlægð, heima í Argentínu til að fylgjast með öðrum mikilvægum leik. Romero ætlar nefnilega að horfa á sitt gamla lið Belgrano spila úrslitaleik við River Plate á sunnudaginn, um argentínska meistaratitilinn. Valdi að sjá sögulegan leik síns gamla liðs Frá þessu greindi Tim Vickery, sérfræðingur um suðuramerískan fótbolta, við TalkSport og útskýrði ákvörðun Romero sem fallið hefur illa í kramið hjá stuðningsmönnum Tottenham. Hann benti á að Romero hefði hafið sinn feril hjá Belgrano og spilað þar uns hann fór til ítalska félagsins Genoa árið 2018. „Belgrano er félagið hans Romero. Þarna byrjaði hann og hann er stuðningsmaður. Belgrano hefur aldrei unnið argentínska meistaratitilinn og þeir eru að fara að mæta River Plate sem hefur unnið titilinn oftast allra, svo þetta er sögulegt,“ sagði Vickery. Paul Hawksbee, stuðningsmaður Tottenham og ársmiðahafi, lýsti hins vegar vanþóknun sinni á ákvörðun Romero. „Ég verði í River Plate treyjunni minni um þessa helgi. Þetta er skelfilegt. Hann fer og horfir á lið sem hann styður í stað liðsins sem hann er fyrirliði hjá og er í fallhættu. Hann er ekki þar til að styðja liðsfélagana og vera með hinum meiddu leikmönnunum.“
Enski boltinn Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Handbolti „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Fleiri fréttir Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Sjá meira