Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Aron Guðmundsson skrifar 21. maí 2026 09:53 Elvar Már Friðriksson spilar með La Laguna út yfirstandandi tímabíl. Getty/Jón Gautur Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Elvar Már Friðriksson, er orðinn leikmaður La Laguna Tenerife á Spáni og gerir samning við félagið út yfirstandandi tímabil en liðið háir harða baráttu um sæti í úrslitakeppni spænsku deildarinnar um þessar mundir.
Elvar kemur til La Laguna Tenerife, sem hefur verið eitt af sterkustu liðum spænsku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár, frá Anwil Wloclawek í Póllandi en spænska liðið á aðeins tvo leiki eftir í deildarkeppni spænsku deildarinnar og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni deildarinnar. Elvar mætti til Tenerife í gær og horfði á nýju liðsfélaga sína tapa fyrir Joventut. Á sínum atvinnumannaferli hefur Elvar spilað í löndum á borð við Frakkland, Svíþjóð, Litáen, Belgíu, Ítalíu, Lettland, Grikkland og Pólland og nú reynir hann fyrir sér í hinni ógnarsterku spænsku deild. Elvar Már er uppalinn í Njarðvík og í morgun gekkst hann undir læknisskoðun hjá La Laguna Tenerife og ætti að verða klár í næsta leik liðsins gegn Granada á laugardaginn kemur. Með liðinu spila þaulreyndir NBA leikmenn á borð við Patty Mills og Marcelo Huertas. View this post on Instagram A post shared by La Laguna Tenerife (@cbcanarias) Elvar hefur að meðaltali skorað 13.5 stig í leik með Anwil á tímabilinu og tekið 6,3 stoðsendingar. Hann var valinn besti leikmaður aprílmánaðar í pólsku deildinni og hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu um árabil.
Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira