Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Aron Guðmundsson skrifar 21. maí 2026 09:28 Arsenal slagsíðan er mikil á Rakarastofu Björns og Kjartans. Hér má sjá fjölskylduna á stofunni. Björn Kjartansson föður Kjartans Björnssonar sem er fyrir miðju. Við hægri hlið Kjartans er bróðir hans Björn Daði og vinstri hlið hans er Mó M Kjartansson. Allt miklir Arsenalmenn. Vísir/Lýður Tuttugu og tveggja ára bið Arsenal eftir Englandsmeistaratitli í fótbolta er lokið titlinum væntanlega hvergi meira fangað heldur en á rakarastofu Björns og Kjartans þar sem að ræður ríkjum Kjartan Björnsson einn af stofnmeðlimum Arsenalklúbbsins á Íslandi.
Það var því ekki annað í stöðunni heldur en að halda á Selfoss til þess að leita viðbragða hjá Kjartani sem hefur fylgt liði sínu í gegnum súrt og sætt, sem stuðningsmaður og sem formaður Arsenalklúbbsins í um tvo áratugi. Starfsmenn Rakarastofu Björns og Kjartans, sem hóf starfsemi árið 1948, voru nær allir klæddir í Arsenaltreyju við komu mina þangað. Afi Kjartans hóf rekstur rakarastofunnar á sínum tíma og hefur starfsemin haldist innan fjölskyldunnar síðan þá. Faðir Kjartans, Kjartan sjálfur og bróðir hans starfa meðal annars þar núna. Njóta af auðmýkt, ekki fantaskap „Þetta eru dásamlegir tímar sem við erum að lifa núna og eigum að njóta þess. Gera það af auðmýkt. Ekki af neinum fantaskap. Heldur auðmýkt og gleði,“ segir Kjartan degi eftir að Englandsmeistaratitillinn var í höfn eftir að Manchester City gerði jafntefli við Bournemouth. Svokallaðir sófameistarar en það kemur ekki að sök. Biðin eftir þeim stóra hefur verið löng „Þetta býður bara upp á að við getum notið þess miklu betur á sunnudaginn að horfa á okkar menn lyfta bikarnum í lokaumferðinni. Að vera komnir með þetta í hús. Klára þetta langþráða verkefni að verða meistarar. Það er staðreyndin.“ Undirritaður skellti sér í stólinn hjá Kjartani þar sem gott var að fara yfir Englandsmeistaratitil Arsenal. Þann fyrsta í tuttugu og tvö ár, þann fjórtánda í sögu félagsins.Vísir/Lýður Það hefur gengið á ýmsu hjá Arsenal á tímabilinu. Eftir þrjú tímabil í röð þar sem að niðurstaðan var annað sætið í ensku úrvalsdeildinni komst liðið í alvöru séns á titlinum í ár. Á tímabili leit út fyrir að Skyttunum væri að fatast flugið en verkefnið kláruðu þær þó með sóma. Ein harðasta Arsenalkona landsins lést í síðustu viku, hún Sigfríð á Akureyri. Ég tileinka henni þennan sigur. Kjartan Björnsson Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum undir stjórn Mikel Arteta, stjóra Arsenal sem er fyrrverandi leikmaður félagsins en Kjartan hefur aldrei misst trúna á Spánverjanum. „Ég hef aldrei verið á þeim vagni, eins og sagt er nú til dags, að vilja láta reka hann. Arteta hefur tekist að skapa alvöru liðsheild. Fyrir tímabilið fékk hann mikla fjármuni til þess að fá inn nýja leikmenn. Ég held að enginn annar framkvæmdastjóri í sögu Arsenal hafi fengið viðlíka fjármuni til leikmannakaupa en hann valdi rétt.“ Stóru málin krufin í stólnum Eins og gefur að skilja eru stóru málin í fótboltanum oft rædd á Rakarastofu Björns og Kjartans þar sem að er mikil Arsenal slagsíða. „Við erum að rífast hér við Liverpool-, Manchester United- og Tottenham menn. Við rífumst nú ekki við Leedsara en það er mikið af þeim hérna líka. Við reynum að gera þetta af kurteisi. Það er mikil hefð hérna fyrir fótboltarifrildi. En við reynum alltaf að koma vel fram við okkar andstæðinga. Það er ekkert gaman að hinu. Sýna virðingu. Nú eigum við kannski einhverja virðingu skilið.“ Gætu bætt við stórum titli Arsenal á möguleika á að gera tímabilið sögulegt með sigri í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn ríkjandi Evrópumeisturum PSG undir lok maí sem yrði þá í fyrsta sinn í sögunni sem Arsenal vinnur þá keppni. Einu sinni áður hefur Arsenal komist í úrslitaleikinn. Árið 2006 gegn Barcelona í París. Kjartan var á vellinum þá og sá sína menn upplifa súrt tap. Hann ætlar að vera heima í þetta skipti og horfa á leikinn með Arsenalfjölskyldunni á Íslandi. „Ég bara vona að guð gefi það að þetta verði sterkt áfram,“ segir Kjartan aðspurður hvort ekki séu öll teikn á lofti að nú sé bara upphafið á velgengni Arsenal næstu árin. „Ein harðasta Arsenalkona landsins lést í síðustu viku, hún Sigfríð á Akureyri. Ég tileinka henni þennan sigur. Sendi bæði samúðarkveðjur til fjölskyldunnar og baráttukveðju til allra Arsenal manna.“
Arsenal FC Árborg Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Sjá meira