Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 20. maí 2026 08:32 Það er óhætt að mæla með viðtali við Ólaf Ragnar Grímsson í hlaðvarpinu Chess after dark sem var gefið út þann 9. maí sl. Ólafur fer þar um víðan völl, ræðir m.a. stöðuna í heimsmálunum og áskoranirnar, en ekki síður tækifærin sem blasa við Íslandi. Í umræðu um utanríkismál grípur Ólafur til samlíkingar við handbolta - segir það vera skemmtilega íþrótt. Hins vegar sé handbolti ekki mjög skynsamlegt leikjakerfi til að gæta hagsmuna ríkis á alþjóðavelli. Í handboltanum séu hraðaupphlaup aðalatriðið en í utanríkisstjórnmálum þurfi að móta langtímastöðu. Ráðherrar sem fari með framkvæmdavaldið óskorað þurfi að gaumgæfa hvert skref: „Hraðaupphlaup í utanríkismálum er það versta sem þú getur gert.“ Ólafur leggur áherslu á að í þessum efnum gefi fólk sér tíma, m.a. í umræðu og greiningu. Það sé e.t.v. það mikilvægasta í farsælum tökum á utanríkispólitískri stöðu ríkja, að vita „hvenær á að bíða og hvenær ekki“. Handboltasamlíking engin tilviljun Það væntanlega ekki tilviljun að Ólafur velur samlíkingu við handbolta í þetta sinn. Utanríkisráðherra er enda þekktur handboltaunnandi. Ólafur fer djúpt í umræðuna um Evrópusambandið og lýsir yfir vonbrigðum með asann sem ræður för hjá utanríkisráðherra og ríkisstjórninni þegar kemur að aðild Íslands að ESB. Utanríkisráðherra er formaður flokks sem var stofnaður um baráttu fyrir aðild Íslands að ESB. Og nú þegar hún hefur fengið tækifæri til að setja aðildina á dagskrá í samstarfi við annan ESB-flokk, Samfylkingu, og án mótstöðu frá Flokki fólksins, liggur henni á. Hraðaupphlaupið er hafið og utanríkisráðherra ætlar sér að vinna leikinn; koma Íslandi inn í ESB. Aðild Íslands að ESB rædd á Alþingi Í dag hefst síðari umræða á Alþingi um tillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður Íslands um aðild að ESB. Grundvöllurinn er samþykkt Alþingis frá 2009 og bréf Jóhönnu Sigurðardóttur sama ár þar sem hún sækir formlega um aðild að ESB fyrir hönd lýðveldisins Íslands. Þetta kemur fram í tillögu utanríkisráðherra og áliti meirihluta utanríkismálanefndar. Nú liggur fyrir Alþingi að ræða aðild Íslands að ESB. Kosti þess og galla. Stjórnarmeirihlutinn gefur þinginu heila fjóra daga til að ræða málið. Til samanburðar má nefna að kílómetragjaldið var rætt í fjóra daga við aðra umræðu á Alþingi. Það verður nefnilega að kjósa 29. ágúst og til þess verður að ljúka tillögu um atkvæðagreiðsluna á Alþingi fyrir 29. maí. Engin rök hafa verið færð fyrir asanum. Það má bara ekki stöðva hraðaupphlaup utanríkisráðherra. Sjálfstæðið og íslenska efnahagsundrið Það er sömuleiðis áhrifamikið að hlusta á Ólaf lýsa árangrinum sem við Íslendingar höfum náð í krafti sjálfstæðis okkar sem var algjörlega einstakt fyrir svo fámenna þjóð. Hann lýsir uppvaxtarárum sínum þar sem voru engir vegir milli fjarða fyrir vestan og engar brýr. Engin höfn í var Reykjavík. Við erum efnahagslegt undur; höfum byggt upp stórkostlega innviði í dreifbýlu, fámennu landi í krafti þess að við höldum sjálf á okkar málum. Og framtíðin er björt fyrir Íslendinga ef við höldum rétt á okkar málum. Ég hvet lesendur til að fylgjast með umræðunni um ESB. Lesa þær upplýsingar sem við í stjórnarandstöðunni höfum beitt okkur fyrir að afla. Það verður enda almenningur sem tekur ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við stígum þetta skref inn í ESB. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar