Staðan í viðræðum Bandaríkjanna og Grænlands Arnór Sigurjónsson skrifar 19. maí 2026 16:30 Fimm fundir hafa verið haldnir milli bandarískra, grænlenskra og danskra embættismanna frá því í janúar s. l. um framtíðarviðveru Bandaríkjanna á Grænlandi, en þeir hafa verið haldnir í kjölfar yfirlýsinga Trump forseta um að innlima Grænland í Bandaríkin - með hervaldi ef nauðsyn krefði. Nokkur leynd hvílir yfir þessum viðræðum sem hafa farið fram í Washington, en þær upplýsingar sem hafa komið fram um gang þeirra hafa valdið grænlenskum og dönskum stjórnmálamönnum áhyggjum. Það helsta er eftirfarandi: ·Bandarísk hermálayfirvöld hafa farið fram á aðstöðu fyrir þrjár herstöðvar auk þeirrar sem þeir hafa nú þegar í norðurhluta landsins. Ein þeirra yrði staðsett í Narsarsuaq, en ekki er vitað um staðsetningu hinna tveggja. Nauðsyn þess að auka fjölda bandarískra herstöðva á Grænlandi er m.a. vegna óska þeirra um að byggja og starfrækja djúpsjávarhöfn og æfingaaðstöðu fyrir sérsveitir auk þess að sinna eftirliti með ferðum á vegum kínversku og rússnesku herjanna. Nú þegar hefur bandaríski herinn aðstöðu á Keflavíkurflugvelli til eftirlits með kafbátum rússneska Norðurflotans auk flugvéla og herskipa þeirra sem athafna sig á Norður-Atlantshafi. Sams konar aðstöðu hefur bandaríski herinn í Noregi auk tíðra heræfinga í Norður-Noregi og Svíþjóð. Þeirri spurningu hvað kallar á þessa miklu aukningu á hernaðarviðveru Bandaríkjanna á Grænlandi hefur ekki verið svarað á fullnægjandi hátt. ·Bandarísk hermálayfirvöld vilja að samningar við grænlensk og dönsk stjórnvöld um herstöðvar á Grænlandi verði til eilífðar jafnvel þó svo að Grænland verði sjálfstætt. Grænlenskir stjórnmálamenn óttast að slíkir samningar skerði möguleika þeirra til að verða sjálfstæð og fullvalda þjóð. ·Bandarísk stjórnvöld vilja hafa neitunarvald um meirháttar fjárfestingar á Grænlandi til að koma í veg fyrir fótfestu rússneskra eða kínverskra fjárfesta í nútíð og framtíð. Árið 2018 var kínverskt ríkisfyrirtæki leiðandi í samningaviðræðum um byggingu nýrra alþjóðaflugvalla á Grænlandi þ.m.t. í Iluilissat. Hætta var við þau áform í kjölfar þrýstings frá bandarískum stjórnvöldum. Grænlenskir stjórnmálamenn óttast að það það geti haft í för með sér takmarkanir á uppbyggingu og innviðafjárfestingum grænlensks samfélags með tilsvarandi skerðingu á fullveldi og sjálfstæði í framtíðinni. ·Nýting náttúruauðlynda er einnig á dagskrá viðræðnanna. Ljóst er að kröfur Bandaríkjamann á hendur grænlenskum og dönskum stjórnvöldum eru verulega íþyngjandi. Sumir hafa gengi svo langt að fullyrða að ef samningar á þessum nótum verði undirritaðir sé draumur Grænlendinga um sjálfstæða og fullvalda þjóð fyrir bí. Að baki liggur svo sú hótun að náist ekki samningar milli Grænlendinga og Bandaríkjamanna raungerist áform Trump forseta um yfirtöku á Grænlandi með hervaldi ef nauðsyn krefur. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar