Körfubolti

Sjáðu öll til­þrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Ís­landi“

Sindri Sverrisson skrifar
Jeremy Pargo var valinn mikilvægasti leikmaður (MVP) úrslitakeppninnar.
Jeremy Pargo var valinn mikilvægasti leikmaður (MVP) úrslitakeppninnar. Vísir/Sigurður Ingi Pálsson

Það er hreinlega tilefni til að reisa styttu af Bandaríkjamanninum Jeremy Pargo í Grindavík eftir guðdómlega frammistöðu hans í gærkvöld þegar Grindvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Tilþrif Pargo verða lengi í minnum höfð og má nú sjá þau á Vísi.

Frammistöðu Pargo í lýsingu Gumma Ben og Harðar Unnsteinssonar á Sýn Sport Íslandi má sjá hér að neðan.

Pargo skoraði alls 48 stig í leiknum sem er nánast einsdæmi í úrslitaeinvígi á Íslandi. Hann fór fyrir sínu liði frá upphafi og skoraði 22 stig í fyrsta leikhlutanum, þegar Grindvíkingar, sem léku án þriggja lykilmanna, bjuggu til bil sem Tindastóli tókst aldrei að brúa.

Pargo setti meðal annars niður tíu þrista í leiknum, sem er met í úrslitum í óframlengdum leik, og þar af var náðarhöggið sem hann veitti Tindastólsmönnum þegar hann jók muninn í 105-101 hálfri mínútu fyrir leikslok.

Sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi áttu vart orð til að lýsa frammistöðu Grindavíkur en bentu þó á að fleiri hefðu átt skínandi frammistöðu fyrir Grindavíkurliðið. Enginn lék þó eins og Pargo og enginn í deildinni gæti leikið eins og Pargo gerði í gær, að mati sérfræðinganna:

„Ég hef aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi,“ sagði Hermann Hauksson í beinni útsendingu úr Síkinu í gærkvöld.

„Það sem Pargo sýndi okkur hérna í dag er bara eins og Hlynur [Bæringsson] sagði… gæðin sem hann er með, þetta Euroleague-, NBA-dæmi… Hérna sýndi hann bara nákvæmlega hvaða gæði hann hefur fram yfir alla aðra leikmenn í þessari deild,“ sagði Hermann en hinn fertugi Pargo á að baki feril í sterkustu deildarkeppnum heims, NBA-deildinni og Euroleague.

„Þetta er ótrúlegt. Þessi leikur hjá honum var bara sturlun. Ég er orðlaus,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson sem þó þekkir það vel að raða niður þriggja stiga skotum sjálfur.


Tengdar fréttir

Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti

Jeremy Pargo átti stórkostlegan leik þegar að Grindavík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri gegn Tindastól í Síkinu í kvöld. Pargo þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti á farsælum ferli.

Tár­vot sigur­stund bræðranna frá Grinda­vík

Hún var tárvot sigurstundin hjá bræðrunum Jóhanni Þór Ólafssyni og Ólafi Ólafssyni í leikslok í kvöld þegar að Grindavík tryggði sér sinn fjórða Íslandsmeistaratitil í sögunni með sigri gegn Tindastól í Síkinu. Bræðurnir sem lifa fyrir Grindavík og hafa mátt þola margt að uppskera árangur erfiðisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×