Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. maí 2026 09:00 Samband Mohameds Salah og Arnes Slot hefur verið mikið til umræðu í vetur. getty/Robbie Jay Barratt Steven Gerrard segir að yfirlýsing Mohameds Salah um stöðu mála hjá Liverpool sé óþægileg fyrir knattspyrnustjórann Arne Slot.
Í gær birti Salah færslu á samfélagsmiðlum, bæði á X og Instagram, þar sem hann sagði að til að Liverpool kæmist aftur á beinu brautina þyrfti liðið að endurheimta einkenni sitt, heví metal sóknarboltann sem það spilaði undir stjórn Jürgens Klopp. „Það var mjög sársaukafullt að sjá okkur tapa enn einum leiknum á þessu tímabili og ekki það sem stuðningsmenn okkar eiga skilið. Ég vil að Liverpool verði aftur heví metal sóknarliðið sem andstæðingar þess óttast og lið sem vinnur titla. Það er fótboltinn sem ég kann að spila og við þurfum að endurheimta þessi einkenni og halda þeim. Það á að vera óumdeilanlegt og allir sem ganga í raðir félagsins ættu að aðlagast því,“ skrifaði Salah í færslunni. Gerrard, sem var lengi fyrirliði Liverpool, var inntur eftir viðbrögðum við útspili Salahs á TNT. „Þetta er mjög áhugavert. Mo Salah segir ekki margt og hann tístir ekki, hvað þá svona. Svo ég held að hann sé að senda skilaboð út í kosmósið um að hlutirnir í búningsklefanum hjá Liverpool séu ekki í lagi: einkennið er farið og það særir hann að sjá það,“ sagði Gerrard. „Tímasetningin kemur mér á óvart. Það er einn leikur eftir og það er kveðjuleikur hans fyrir Liverpool. Þið sem starfið í fjölmiðlum vitið að Salah tjáir sig sjaldan. Hann hefur farið í viðtöl undanfarið því það er að koma að leiðarlokum á ótrúlegum ferli hans hjá Liverpool. Þetta er talsverður áfellisdómur yfir stjóranum og starfsliði hans í ljósi stöðunnar sem Liverpool er í.“ “I think he’s sending a message to the outside that things in that dressing room aren’t right” 😬Steven Gerrard on Mo Salah’s latest tweet, seemingly calling out the standards at Liverpool right now 👀 pic.twitter.com/NeWPUPqqcR— Football on TNT Sports (@footballontnt) May 16, 2026 Þetta er ekki í fyrsta sinn á tímabilinu sem ummæli Salahs valda usla. Eftir 3-3 jafntefli við Leeds United í desember sagðist hann hafa verið gerður að blóraböggli fyrir slæmu gengi Liverpool. Jafnframt sagði Salah að samband þeirra Slots væri varla til staðar. Salah kom inn á sem varamaður þegar sextán mínútur voru eftir af leiknum gegn Aston Villa á föstudaginn. Liverpool tapaði leiknum, 4-2, og er í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Salah leikur væntanlega sinn síðasta leik fyrir Liverpool þegar liðið tekur á móti Brentford eftir viku.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira