Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Eiður Þór Árnason skrifar 15. maí 2026 22:47 Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í borginni og Ari Edwald oddviti Miðflokksins takast á í kappræðum Sýnar á miðvikudagskvöld. Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar fylgist með. vísir/vilhelm Oddviti Viðreisnar útilokar meirihlutasamstarf við Miðflokkinn í borgarstjórn og segir Samfylkinguna ekki vera sinn fyrsta kost. Henni lítist betur á samstarf við oddvita Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Pírata. Þetta sagði Björg Magnúsdóttir í kappræðum RÚV í kvöld. „
Ég hef nú farið ansi langt með að segja að það eru of mörg skref á milli okkar Ara [oddvita Miðflokksins], Viðreisnar og Miðflokksins. Það er pólitískur ómöguleiki fyrir okkur í Viðreisn og Miðflokknum að ná saman, svo það sé bara sagt skýrt,“ sagði Björg. Einar ekki spenntur fyrir Miðflokknum Miðað við nýjustu könnun Gallup sem birt var í dag getur Sjálfstæðisflokkurinn myndað meirihluta í borgarstjórn ásamt Miðflokknum og Framsóknarflokknum. Björg spurði Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins, hvort hann teldi eftirspurn vera eftir slíkum meirihluta hjá borgarbúum og hvernig honum litist á að fara í slík samstarf. Einar sagðist þá frekar vilja mynda meirihluta með Viðreisn og Sjálfstæðisflokki. „Ari er ágætur en þið eruð með erfitt pólitískt bakland sem þið eruð búin að lofa að taka róttækar ákvarðanir varðandi Samgöngusáttmálann og þið eruð í bullandi vandræðum með hinsegin málin og talið svona dálítið inn í óttann í samfélaginu. Ég er þeirrar skoðunar að við séum á þeim stað með Reykjavíkurborg að við verðum að tala skýrt til kjósenda um hvað við ætlum að gera við atkvæðið ykkar eftir kosningar. Ég held að þetta væri skynsamur, hófsamur meirihluti, umburðarlyndur og ég vil bara að kjósendur viti það.“ Einar áréttaði að samkvæmt sömu könnun Gallup vanti einn mann upp á að þessi meirihluti gangi upp. Björg myndi hringja fyrst í Hildi Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, spurði Björgu hvort hún teldi að Viðreisn myndi ná meiri árangri með þeirra mál og yfirlýstu umbreytingarstefnu í samstarfi með Samfylkingunni eða Sjálfstæðisflokknum. Björg sagði flokkinn láta málefnin ráða og ítrekaði að hún hefði áður sagt að oddviti Samfylkingarinnar fengi ekki hennar fyrsta símtal eftir kosningar. „Fyrsta símtalið væri til þín, því mér finnst þetta með frjálslyndið og frelsi inn í kerfin, að frelsa Ráðhúsið úr þessari stjórnsemi sem hefur ríkt, ég tel að það sé afar mikilvægt,“ sagði Björg í kappræðum RÚV. Þáttastjórnendur spurðu Hildi út í mögulega meirihluta og við hverja hún væri búin að tala í aðdraganda kosninganna. Hún sagðist ekki ætla að upplýsa um einkasamtöl en hún hefði rætt við nokkra. „Við höfum átt samtöl við kaffivélina, til dæmis í Ráðhúsinu.“ Hún myndi helst vilja mynda meirihluta með Framsókn, Viðreisn og Miðflokki þar sem stefnumál þeirra væru næst hvert öðru. Ara sárnaði tal Einars Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn væru ekki hluti af hans draumameirihluta. Hann horfi frekar til vinstri og inn á miðju með Vinstrinu og Viðreisn. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sagði lengst á milli þeirra og Samfylkingarinnar. Honum litist ágætlega á samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn, og jafnvel Viðreisn. „Ég var sleginn dálitlum óhug áðan þegar Einar fór að tala svona illa um Miðflokkinn. Mér fannst bara kjósendur heyra það þá hátt og skýrt að ef þeir vilja breytingar í samgöngumálunum í Reykjavík og skipulagsmálunum og þessum stóru málum þá væri öruggast að kjósa Miðflokkinn.“ Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, sagðist geta hugsað sér samstarf með Sósíalistaflokknum eftir átökin sem hafa skekið flokkinn og leiddu til þess að hún yfirgaf hann. Fréttin hefur verið uppfærð.
Viðreisn Framsóknarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Tengdar fréttir Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Sjálfstæðisflokkurinn bætir enn við sig fylgi og mælist langstærstur í borginni í síðustu könnun Maskínu fyrir kosningar. Sitjandi meirihluti er fallinn en ólíkt síðustu könnun Gallup myndi Sjálfstæðisflokkur ekki ná að mynda þriggja flokka meirihluta með Miðflokknum og Framsókn. Í stað þess gæti Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn náð saman meirihluta með Viðreisn. 15. maí 2026 23:15 Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri. 15. maí 2026 18:04 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira
Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Sjálfstæðisflokkurinn bætir enn við sig fylgi og mælist langstærstur í borginni í síðustu könnun Maskínu fyrir kosningar. Sitjandi meirihluti er fallinn en ólíkt síðustu könnun Gallup myndi Sjálfstæðisflokkur ekki ná að mynda þriggja flokka meirihluta með Miðflokknum og Framsókn. Í stað þess gæti Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn náð saman meirihluta með Viðreisn. 15. maí 2026 23:15
Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri. 15. maí 2026 18:04