Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar 15. maí 2026 17:32 Nú er mál að linni áratuga setu núverandi meirihluta við stjórn Reykjavíkurborgar. Öllum má ljóst vera, sér í lagi meirihlutanum sjálfum, að hann hefur ratað í ógöngur á flestum sviðum; fjármálastjórn er í ólestri með glórulausum hækkunum opinberra gjalda og óskilvirkri stjórnsýslu. Sömu sögu er að segja um lögbundna þjónustu, skipulagsmál, skólamál og samgöngumál. Víti til varnaðar Popúlísk hálmstrá eins og „mannréttindi“ og „derringur“ í garð einkabílaeigenda duga skammt til að bjarga ímyndinni. Barnslegur brussugangur meirihlutans og vina þeirra í ráðhúsinu er reyndar alvarlegt félags-pólitískt rannsóknarefni og víti til varnaðar sé tekið mið af nýjum tölum Hagstofunnar um fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt þeim skýrist fjölgunin svo til eingöngu af útlendingum sem hingað berast stríðum straumi. Erlendir ríkisborgarar skipa nú um þriðjung höfuðborgarbúa; þeim fjölgaði um 54% frá 2019 til 2025 samkvæmt Þjóðskrá. Engan skal undra, enda hefur ráðhússherinn helgað sig loftkenndri hugmyndafræði, sem felst í að glenna upp allar gáttir fyrir innflytjendum, flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Loftkennd hugmyndafræði á blindgötum Fáir voga sér að andmæla þessari þróun, enda vill enginn láta það spyrjast um sig að hann „ofsæki minnihlutahópa“. Það er í raun fullkomlega skiljanlegt og gott mál út af fyrir sig miðað við ákveðnar forsendur. En illu heilli hefur verið búið þannig um hnútana að næstum ógerlegt er að viðhafa frjáls og heiðarleg skoðanaskipti um þessa óheillaþróun. Augnblöðkur (horse blinkers) hrossa gegna því hlutverki að takmarka sjónsvið þeirra, svo þau haldi einbeitingu og villist ekki af braut; þessu hefur verið líkt við það þegar fólk aðhyllist loftkennda hugmyndafræði í blindni, en hafnar efnislegum rökum er byggja á skynsemi. Ráðhússherinn og allir hans aðdáendur og fylgjendur ætla sér ekki að villast af hinni meintu mannréttindabraut sinni hvað sem á dynur. Þessi sérkennilegi réttrúnaðarsöfnuður er eins og hrossin á hlaupabrautinni með augnblöðkur er fyrirmuna honum að skynja allar viðvörunarbjöllurnar og rauðu ljósin. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Innflytjendamál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Nú er mál að linni áratuga setu núverandi meirihluta við stjórn Reykjavíkurborgar. Öllum má ljóst vera, sér í lagi meirihlutanum sjálfum, að hann hefur ratað í ógöngur á flestum sviðum; fjármálastjórn er í ólestri með glórulausum hækkunum opinberra gjalda og óskilvirkri stjórnsýslu. Sömu sögu er að segja um lögbundna þjónustu, skipulagsmál, skólamál og samgöngumál. Víti til varnaðar Popúlísk hálmstrá eins og „mannréttindi“ og „derringur“ í garð einkabílaeigenda duga skammt til að bjarga ímyndinni. Barnslegur brussugangur meirihlutans og vina þeirra í ráðhúsinu er reyndar alvarlegt félags-pólitískt rannsóknarefni og víti til varnaðar sé tekið mið af nýjum tölum Hagstofunnar um fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt þeim skýrist fjölgunin svo til eingöngu af útlendingum sem hingað berast stríðum straumi. Erlendir ríkisborgarar skipa nú um þriðjung höfuðborgarbúa; þeim fjölgaði um 54% frá 2019 til 2025 samkvæmt Þjóðskrá. Engan skal undra, enda hefur ráðhússherinn helgað sig loftkenndri hugmyndafræði, sem felst í að glenna upp allar gáttir fyrir innflytjendum, flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Loftkennd hugmyndafræði á blindgötum Fáir voga sér að andmæla þessari þróun, enda vill enginn láta það spyrjast um sig að hann „ofsæki minnihlutahópa“. Það er í raun fullkomlega skiljanlegt og gott mál út af fyrir sig miðað við ákveðnar forsendur. En illu heilli hefur verið búið þannig um hnútana að næstum ógerlegt er að viðhafa frjáls og heiðarleg skoðanaskipti um þessa óheillaþróun. Augnblöðkur (horse blinkers) hrossa gegna því hlutverki að takmarka sjónsvið þeirra, svo þau haldi einbeitingu og villist ekki af braut; þessu hefur verið líkt við það þegar fólk aðhyllist loftkennda hugmyndafræði í blindni, en hafnar efnislegum rökum er byggja á skynsemi. Ráðhússherinn og allir hans aðdáendur og fylgjendur ætla sér ekki að villast af hinni meintu mannréttindabraut sinni hvað sem á dynur. Þessi sérkennilegi réttrúnaðarsöfnuður er eins og hrossin á hlaupabrautinni með augnblöðkur er fyrirmuna honum að skynja allar viðvörunarbjöllurnar og rauðu ljósin.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar