Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Valur Páll Eiríksson skrifar 15. maí 2026 14:59 Stuðningsmenn Southampton bíða niðurstöðu. Warren Little/Getty Images Middlesbrough hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem kallað er eftir brottrekstri Southampton úr umspili ensku B-deildarinnar sökum ásakana um njósnir á æfingasvæði fyrrnefnda liðsins.
Málið kom upp í aðdraganda síðari leiks Middlesbrough og Southampton í undanúrslitum umspilsins. Southampton vann leikinn og tryggði sér þannig sæti í úrslitaleik á Wembley við Hull City. Southampton hefur þegar verið ákært af ensku deildasamtökunum fyrir ólöglegar njósnir í aðdraganda undanúrslitaleiks liðsins við Middlesbrough. Í yfirlýsingu Middlesbrough sem var birt síðdegis er hegðuninni lýst sem andstæðri „íþróttaheilindum og sanngjarnri samkeppni“ og telja að refsing á íþróttagrundvelli, fremur en fjársekt eða slíkt, sé eina sanngjarna niðurstaðan. Þar með er kallað eftir því að Southampton verði vísað úr umspilinu. Middlesbrough myndi þá að líkindum taka sæti liðsins í úrslitaleiknum í staðinn. Yfirheyrsla á vegum óháðrar aganefndar mun fara fram þriðjudaginn 19. maí eða fyrr. Niðurstaða mun liggja fyrir í kjölfar þess en þá munu félögin geta áfrýjað. Ef Southampton er dæmt sekt um njósnir eru engin fordæmi fyrir því. Félaginu gæti verið refsað með stigafrádrætti, sekt eða í versta falli verið hent út úr umspilinu. Úrslitaleikurinn á að fara fram þann 23. maí næstkomandi en vera má að þeim leik verði frestað sökum málsins. Hull City bíður þess að fá að vita hver andstæðingurinn í leiknum verði.
Enski boltinn Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Handbolti „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Fótbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Fleiri fréttir Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Sjá meira