Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Valur Páll Eiríksson skrifar 14. maí 2026 13:30 Slot hefur átt snúið ár. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Hollenski þjálfarinn Arne Slot segist ekki halda annað en að hann haldi starfi sínu hjá Englandsmeisturum Liverpool. Liðinu hefur gengið illa á leiktíðinni.
Slot stýrði Liverpool til sigurs í ensku úrvalsdeildinni á sínu fyrsta tímabili sem knattspyrnustjóri félagsins á síðasta ári. Hann hefur aftur á móti verið gagnrýndur fyrir frammistöðu og árangur liðsins á þessu tímabili. Liverpool situr í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar og mun enda tímabilið án titla. Þá hefur félagið ekki enn tryggt sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili þegar tveir leikir eru eftir. Þrátt fyrir óánægju aðdáenda hefur stjórn félagsins ekki gefið til kynna að hún íhugi að skipta Slot út í sumar. Slot ræddi framtíð sína á blaðamannafundi í dag og sagði: „Ég held ekki að ég ákveði það einn, en ég hef alla ástæðu til að trúa því að ég verði knattspyrnustjóri Liverpool á næsta tímabili.“ „Í fyrsta lagi er ég samningsbundinn þessu félagi og í öðru lagi út frá öllum viðræðum sem við höfum átt. Þetta er mín skoðun á því,“ segir Slot og bætir við: „Ef þú átt ekki besta tímabilið, sérstaklega ef þú berð það saman við síðasta tímabil - ef þú berð það saman við önnur tímabil gætirðu átt aðra umræðu, en ef þú berð það saman við síðasta tímabil - þetta hefur örugglega ekki verið frábært tímabil, þá er það líka eðlilegt að gagnrýni komi,“ „Við höfum allir fengið okkar skerf, leikmennirnir hafa fengið sinn skerf, stjórinn hefur fengið sinn skerf og aðrir í félaginu hafa fengið sinn skerf. Þannig virka hlutirnir nú til dags ef þú vinnur ekki deildina.“ Liverpool getur tryggt sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð með sigri á Aston Villa á morgun. Liðin eigast við klukkan 19:00 annað kvöld og leikurinn verður í beinni á Sýn Sport.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira