Þakklátur fyrir traustið Valdimar Víðisson skrifar 15. maí 2026 07:03 Kæri Hafnfirðingur. Hafnarfjörður er dásamlegur bær. Bær með sögu, hjarta og mikla sál. Hér býr fólk sem lætur sér annt um samfélagið sitt, fylgist með, tekur þátt, hefur skoðanir og vill sjá bæinn sinn dafna. Þessi dásamlegi og hlýi bæjarbragur er eitt það besta við Hafnarfjörð. Bæjarbragurinn verður til í fólkinu, hverfunum, skólunum, íþróttunum, félagsstarfinu, fyrirtækjunum og öllum þeim litlu samskiptum sem gera bæinn okkar að samfélagi. Ég er afar þakklátur fyrir það tækifæri, þann heiður og þau forréttindi að hafa fengið að vera bæjarstjóri allra Hafnfirðinga síðustu 17 mánuði. Ég hef lagt mig fram um að vera sýnilegur og aðgengilegur, eiga samtal við íbúa, starfsfólk bæjarins, félagasamtök, fyrirtæki og alla þá sem hafa eitthvað fram að færa. Bæjarstjóri á ekki að vera langt frá fólkinu. Hann á að vera í samtali við samfélagið, finna lausnir, koma málum áfram og muna alltaf fyrir hverja hann raunverulega vinnur. Nýleg könnun Maskínu sýnir að mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu er mjög ánægður, fremur ánægður eða í meðallagi ánægður með störf mín sem bæjarstjóra eða rúmlega 83%. Fyrir það traust er ég innilega þakklátur. Það er auðvitað ánægjulegt að fá slíka niðurstöðu en fyrst og fremst lít ég á hana sem hvatningu. Hvatningu til að halda áfram að vinna af krafti, auðmýkt og ábyrgð. Traust í stjórnmálum er ekki sjálfsagt. Það þarf að vinna fyrir því á hverjum degi með vinnu, heiðarleika, samtali og því að fylgja málum eftir. Stundum þýðir það að taka erfiðar ákvarðanir. Stundum þýðir það að viðurkenna að hlutir megi ganga betur. En markmiðið á alltaf að vera það sama en það er að gera Hafnarfjörð að enn betri bæ fyrir fólkið sem hér býr og starfar. Framundan eru stór og spennandi verkefni. Við þurfum að halda áfram að byggja upp góða þjónustu við börn og fjölskyldur, styðja við öflugt skóla- og frístundastarf, tryggja góða þjónustu við eldra fólk og skapa aðstæður þar sem fólk getur búið, starfað og notið lífsins í bænum sínum. Við þurfum að huga vel að innviðum, skipulagi, samgöngum, húsnæðismálum og fjármálum bæjarins. Það þarf að gera af festu en líka af skynsemi. Hafnarfjörður á að vera fjölskylduvænn og öruggur bær. Bær þar sem börn fá góðan grunn, ungmenni fá tækifæri til að blómstra, fjölskyldur finna fyrir stuðningi, fyrirtæki geta vaxið og eldra fólk nýtur góðrar þjónustu. Nú óska ég eftir umboði ykkar til að halda áfram. Með mér á lista Framsóknar er öflugt fólk með fjölbreytta reynslu, metnað og einlægan vilja til að vinna vel fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga. Slagorð okkar í Framsókn er: „Þetta snýst um Hafnarfjörð.“ Þetta er einföld en mikilvæg áminning um hvað skiptir máli. Þetta snýst um fólkið. Þetta snýst um hverfin. Þetta snýst um skólana, þjónustuna, atvinnulífið, íþrótta- og menningarstarfið, umhverfið og þetta snýst um framtíðina sem við erum að byggja saman. Ég vil halda áfram að vinna fyrir Hafnarfjörð með sömu nálgun og hingað til en það er að hlusta, vera sýnilegur, taka ábyrgð og koma góðum málum í framkvæmd. Ég veit að það verður alltaf hægt að gera betur. Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil halda áfram. Ég hef trú á Hafnarfirði, trú á fólkinu hér og trú á því að með góðri samvinnu getum við gert enn betur. Með auðmýkt og þakklæti óska ég eftir stuðningi þínum. Áfram Hafnarfjörður. Höfundur er oddviti Framsóknar og bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar