Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Atli Ísleifsson skrifar 13. maí 2026 20:26 Hildur Björnsdóttir er oddviti Sjálfstæðismanna í borginni. Vísir/Vilhelm Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 28 prósenta fylgi og er stærstur flokka samkvæmt nýrri könnun Maskínu um fylgi flokka í Reykjavík. Fylgi Samfylkingar og Miðflokks eykst á milli kannana en fylgi Vinstrisins og Sósíalista dregst saman.
Könnunin var kynnt í upphafi kappræðna fréttastofu Sýnar sem hófust klukkan 19:30. Samfylkingin mælist með 19,0 prósenta fylgi samanborið við 18,0 prósenta fylgi í síðustu könnun. Vinstrið mælist þriðji stærsti flokkurinn með 11,8 prósenta fylgi samanborið við 13,2 prósenta fylgi í síðustu könnun. Viðreisn mælist með 11,6 prósenta fylgi en var með 12,6 prósent í síðustu könnun Maskínu. Miðflokkurinn mælist með 9,3 prósenta fylgi, en 6,7 prósenta fylgi síðast. Framsókn mælist með 5,9 prósenta fylgi en var með 5,7 prósent síðast. Píratar mælast með 4,2 prósent en voru með 4,9 prósenta fylgi í könnun Maskínu í upphafi mánaðar. Flokkur fólksins mælist með 4,1 prósent en var með 2,8 prósent síðast. Sósíalistaflokkurinn mælist með 3,2 prósent en mældist með 5,1 prósent síðast. Okkar borg og Góðan daginn mælast báðir með eins prósenta fylgi. Samkvæmt könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkurinn sjö borgarfulltrúa, Samfylkingin fimm, Vinstri og Viðreisn þrjá, Miðflokkurinn tvo, Framsókn, Píratar og Flokkur fólksins einn. Sósíalistar fengju ekki mann kjörinn, ekki frekar en Okkar borg og Góðan daginn. Nánar verður rýnt í stöðu mála í Kosningaspá Vísis í samstarfi við Baldur Héðinsson stærðfræðing á Vísi í fyrramálið. Svona liti borgarstjórn út samkvæmt niðurstöðum könnunar Maskínu. Vísir Samkvæmt könnuninni myndi borgarstjórn líta þannig út: Hildur Björnsdóttir (D) Bjarni Guðjónsson (D) Brynjar Níelsson (D) Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir (D) Rúnar Freyr Gíslason (D) Guðný María Jóhannsdóttir (D) Albert Guðjónsson (D) Pétur Marteinsson (S) Heiða Björg Hilmisdóttir (S) Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir (S) Skúli Helgason (S) Stein Olav Romslo (S) Sanna Magdalena Mörtudóttir (A) Líf Magneudóttir (A) Stefán Pálsson (A) Björg Magnúsdóttir (C) Róbert Ragnarsson (C) Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C) Ari Edwald (M) Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir (M) Einar Þorsteinsdóttir (B) Kristinn Jón Ólafsson (P) Guðmundur Ingi Þóroddsson (F) Hægt er að horfa á myndband af oddvitunum bregðast við niðurstöðum könnunarinnar í spilaranum að neðan. Könnunin fór fram 6. til 12. maí 2026 og voru 1.511 svarendur sem tóku afstöðu til flokks.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Vinstri græn Vinstrið Flokkur fólksins Framsóknarflokkurinn Píratar Miðflokkurinn Góðan daginn Okkar borg Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fleiri fréttir Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Sjá meira