Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar 13. maí 2026 09:10 Í vikunni samþykkti borgarstjórn mikilvægar aðgerðir til að styrkja uppbyggingu félagslegs húsnæðis í Reykjavík. Samþykktin felur meðal annars í sér aukið eigið fé til Félagsbústaða, þróun nýrra búsetuforma og viljayfirlýsingu um lóðir fyrir allt að 345 íbúðir á næstu árum. Þetta eru stór skref og nauðsynleg. Staðan á húsnæðismarkaði er þannig að sífellt fleiri ná ekki fótfestu án stuðnings. Biðlistar eftir félagslegu húsnæði hafa lengst á sama tíma og úthlutunum hefur fækkað. Fyrir marga þýðir það langvarandi óöryggi, dýrari leigumarkað eða tímabundnar lausnir sem eiga aldrei að verða varanlegt ástand. Þess vegna skiptir máli að borgin láti ekki undan þeirri hugmynd að félagslegt húsnæði sé eitthvað sem eigi bara að halda í lágmarki. Reykjavík þarf þvert á móti að byggja upp öflugt félagslegt húsnæðiskerfi sem getur mætt raunverulegri þörf fólks. Við erum að grípa þau sem eru á jaðrinum og valdefla þau útúr fátækt og erfiðum félagslegum aðstæðum. Styrkja kjarnann í samfélaginu. Samþykkt borgarstjórnar byggir á þeirri sýn. Með eiginfjárframlagi til Félagsbústaða verður hægt að fjölga íbúðum og bæta stöðu félagsins til lengri tíma. Sérstök áhersla verður lögð á kaupréttaríbúðir, sem hafa reynst hagkvæm leið til uppbyggingar, en einnig á íbúðir fyrir stærri fjölskyldur og fólk með sérþarfir. Það skiptir líka máli að horfa á hvernig núverandi húsnæði nýtist betur. Í dag búa margir í íbúðum sem passa ekki lengur við fjölskyldustærðina eða aðstæðurnar. Með betri hvötum og auknum sveigjanleika má losa um íbúðir fyrir fólk sem hefur beðið lengi eftir húsnæði. Samhliða þessu var samþykkt viljayfirlýsing milli Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða um lóðir og svæði fyrir allt að 345 íbúðir á tímabilinu 2026 til 2032. Það er mikilvægt skref vegna þess að stærsta hindrunin við uppbyggingu félagslegs húsnæðis hefur oft einfaldlega verið skortur á lóðum og framtíðarsýn. Það skiptir líka máli hvar við byggjum. Félagslegt húsnæði á ekki að vera falið á jaðrinum eða samþjappað á fáa staði. Markmiðið þarf að vera félagslega fjölbreytt hverfi þar sem fólk með ólíkar tekjur og ólíkar aðstæður getur búið hlið við hlið. Það er athyglisvert að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks kusu gegn þessum aðgerðum. Á sama tíma og húsnæðisvandinn vex virðist enn vera pólitísk tregða hjá hægrinu gagnvart því að borgin taki virkan þátt í að tryggja fólki öruggt húsnæði. En reynslan sýnir að markaðurinn einn leysir ekki þennan vanda. Þegar framboð á hagkvæmu húsnæði er of lítið bitnar það fyrst og fremst á tekjulægra fólki, ungu fólki, einstæðum foreldrum og þeim sem standa höllum fæti. Þess vegna þarf Reykjavík að halda áfram á þessari braut. Byggja meira. Skipuleggja betur. Hugsa lengra fram í tímann. Öruggt heimili á ekki að vera forréttindi fárra heldur grunnur að góðu samfélagi. Höfundur er borgarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Félagsmál Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun