Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason skrifar 15. maí 2026 07:32 Samfélagið sem við búum í er framlenging af okkur sjálfum. Bærinn okkar endurspeglar gildin okkar. Mín reynsla af Kópavogsbúum er að þeim er annt um bæinn sinn og nærumhverfi. Þeir eru almennt lausir við ofstæki, vilja bara hafa hlutina í lagi og að vandað sé til verka. Bæjarbragur, hóflega þétt byggð og græn svæði skiptir fólk máli. En Kópavogsbúum er líka annt um aðra Kópavogsbúa. Þeir vilja styðja þau sem þurfa stuðning og eru ekki feimnir við að stíga fram og taka ábyrgð þegar á reynir. Fólk er ekki sátt þegar það heyrir að það hafi verið tekin ákvörðun um að stytta ekki biðlista eftir þjónustu við fötluð börn og aldraða. Það er ekki hrifið af því að kostnaði sé velt yfir á barnafólk og það skilur að ef Kópavogur og Ísland á að dafna áfram þurfum við að létta undir með fjölskyldum. Kópavogsbúar vilja gera vel við eldri borgara. Þeir skilja að með hækkandi meðalaldri þarf að hugsa til framtíðar ef okkur á að takast að tryggja fólkinu sem byggði þetta land mannsæmandi ævikvöld. Þeim er meinilla við tilhugsunina um að fólk gangi eitt og einmana í gegnum sín síðustu ár. Kópavogsbúum rennur blóðið til skyldunnar í húsnæðismálum og finnst óásættanlegt að bærinn þeirra neiti að taka þátt í uppbyggingu húsnæðis fyrir venjulegt vinnandi fólk sem er á vergangi á húsnæðismarkaði. Laugardaginn þann 16. maí kjósum við um framtíð Kópavogs til næstu fjögurra ára. En við kjósum líka um hvernig samfélag Kópavogur er og á að vera. Kjósum því nýja forgangsröðun, þar sem við látum okkur hvert annað varða og forgangsröðum í þágu þjónustu við íbúa. Þar sem við léttum undir með barnafjölskyldum, hlúum að fólkinu sem byggði landið og pössum upp á bæinn sem við elskum. Kjósum Samfylkinguna 16. maí. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Már Torfason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Skoðun Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Samfélagið sem við búum í er framlenging af okkur sjálfum. Bærinn okkar endurspeglar gildin okkar. Mín reynsla af Kópavogsbúum er að þeim er annt um bæinn sinn og nærumhverfi. Þeir eru almennt lausir við ofstæki, vilja bara hafa hlutina í lagi og að vandað sé til verka. Bæjarbragur, hóflega þétt byggð og græn svæði skiptir fólk máli. En Kópavogsbúum er líka annt um aðra Kópavogsbúa. Þeir vilja styðja þau sem þurfa stuðning og eru ekki feimnir við að stíga fram og taka ábyrgð þegar á reynir. Fólk er ekki sátt þegar það heyrir að það hafi verið tekin ákvörðun um að stytta ekki biðlista eftir þjónustu við fötluð börn og aldraða. Það er ekki hrifið af því að kostnaði sé velt yfir á barnafólk og það skilur að ef Kópavogur og Ísland á að dafna áfram þurfum við að létta undir með fjölskyldum. Kópavogsbúar vilja gera vel við eldri borgara. Þeir skilja að með hækkandi meðalaldri þarf að hugsa til framtíðar ef okkur á að takast að tryggja fólkinu sem byggði þetta land mannsæmandi ævikvöld. Þeim er meinilla við tilhugsunina um að fólk gangi eitt og einmana í gegnum sín síðustu ár. Kópavogsbúum rennur blóðið til skyldunnar í húsnæðismálum og finnst óásættanlegt að bærinn þeirra neiti að taka þátt í uppbyggingu húsnæðis fyrir venjulegt vinnandi fólk sem er á vergangi á húsnæðismarkaði. Laugardaginn þann 16. maí kjósum við um framtíð Kópavogs til næstu fjögurra ára. En við kjósum líka um hvernig samfélag Kópavogur er og á að vera. Kjósum því nýja forgangsröðun, þar sem við látum okkur hvert annað varða og forgangsröðum í þágu þjónustu við íbúa. Þar sem við léttum undir með barnafjölskyldum, hlúum að fólkinu sem byggði landið og pössum upp á bæinn sem við elskum. Kjósum Samfylkinguna 16. maí. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar