Ekki mannúðlegt að halda farþegunum um borð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. maí 2026 23:16 Guðrún Aspelund er sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm Sóttvarnalæknir segir það ekki réttlætanlegt að láta gesti um borð í MV Hondius dvelja þar um borð vikum saman. Frá því á sunnudag hefur verið unnið að því að koma farþegum heim til sín.
Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sagði ríkjum heims að búa sig undir að ný hantaveirusmit greinist á næstu dögum. Á þessari stundu séu þó ekki nein merki um upphaf faraldurs. Staðan gæti þó breyst í ljósi þess hversu langur meðgöngutími veirunnar er. Hópsmit kom upp um borð í hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius. Níu greindust með veiruna og þrír létust. Frá því á sunnudag hefur verið unnið að því að koma farþegunum heim til sín en þeir eru frá 23 þjóðlöndum. Ghebreyesus hélt blaðamannafund með forsætisráðherra Spánar í Madrid í dag og hældi spænsku ríkisstjórninni fyrir að hafa tekið forystu í málinu. „Við getum fullyrt að þessi áfangi aðgerðarinnar hafi heppnast vel. Eins og þið heyrðuð frá Sanchez forsætisráðherra hafa allir farþegarnir farið frá borði og yfirgefið Tenerife,“ sagði hann. „Skipið MV Hondius er nú á leið til Hollands. Næstum 150 manns frá 23 löndum voru um borð í skipinu í margar vikur við aðstæður sem hljóta að hafa verið mjög ógnvekjandi. Sumir farþegar voru jafnvel á barmi taugaáfalls.“ Varkárir sérfræðingar Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir veiruna ekki vera bráðsmitandi öndunarfærasýkingu líkt og Covid eða inflúensa. „Þannig að það er vissulega einhver áhætta á að það smitist frá einhverjum en hún er mjög lítil. Þó að það gerist eru mjög litlar líkur að það myndi leiða til einhverrar dreifingar á smitum,“ segir hún. „Sérfræðingar eru alltaf mjög varkárir og það er voðalega erfitt að segja eitthvað afgerandi, að eitthvað muni aldrei gerast eða geti aldrei gerst. En líkurnar eru mjög litlar og það er búið að segja það endurtekið.“ Búið er að greina raðgreina sýni frá þeim sem greindust með veiruna og ekki sé um nýtt afbrigði af veirunni að ræða. Flókin aðgerð Guðrún segir aðgerðina sem fólst í að koma öllum farþegum Hondius heim til sinna landa hafa verið mjög flókna. „Það voru alþjóðastofnanir sem komu að, Sóttvarnarstofnun Evrópu, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og almannavarnarkerfi í Evrópu og nokkur ríki sem fluttu þegna bæði til síns heimalands og annarra landa. Þetta er vissulega mjög flókið og áhættusamt,“ segir hún. Hins vegar telur hún það ekki hafa verið réttlætanlegt né mannúðlegt að láta farþegana dvelja áfram um borð í skipinu. „Þau voru búin að vera þarna í nokkrar vikur og nú þegar er smitáhættan lítil. Aðstæður um borð eru ekki þannig að það sé hægt að bjóða upp á það, þetta er frekar þröngt og það var nú þegar orðið tæpt heilsufarsástand hjá sumum andlega og ég held að það hafi ekki verið réttlætanlegt að gera það og enginn í rauninni sem vildi gera það eða vera í þeim aðstæðum.“
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Sjá meira