Umtalsverður hávaði undanskilinn aðgerðaráætlun um hávaðamengun Daði Rafnsson, Kristján Vigfússon og Martin Swift skrifa 12. maí 2026 19:22 Það er mikið fagnaðarefni þegar Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lætur umhverfishávaða í kringum fjölmennustu byggð landsins varða. Í sjónvarpsfréttum RÚV þann 9. maí var flutt frétt af athugasemdum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna hávaða sem hlýst af brúarsmíði yfir Fossvog. Þar verða framkvæmdaaðilar að vinna á nóttunni vegna þess að höfuðborgarsvæði Íslands er það eina í Evrópu sem er með flugvöll í skilgreindri miðju innan um stjórnsýslu, menntastofnanir og sína fjölmennustu byggð. Hæð prammans sem er notaður til að reka niður nauðsynlega staura er talin geta ógnað flugöryggi en völlurinn er bæði með ítrasta opnunartíma og margbreytilegustu tegund flugumferðar sem leyfist í evrópskum höfuðborgum. Því þarf verktakinn að vinna á nóttunni. Samkvæmt frétt RÚV hefur Heilbrigðiseftirlitið áhyggjur af „rúmraski íbúa” í grennd við framkvæmdirnar. Hávaðinn sem hlýst af þessum tímabundnu framkvæmdum getur numið 40-45 desibelum og einstaka sinnum yfir því marki samkvæmt mælingum verktakans. Samkvæmt staðarstjóra verktakans Ístaks hafa engar kvartanir borist til fyrirtækisins hingað til. Taka ber fram að Ístak hefur verið til stakrar fyrirmyndar hvað varðar upplýsingagjöf til íbúa í nágrenni framkvæmdanna. Á Facebook-grúppum nálægra hverfa hefur staðarstjórinn bæði lýst skilningi á því að framkvæmdin geti haft áhrif á íbúa og miðlað upplýsingum um möguleg áhrif og vinnulag. Enda eru neikvæð áhrif umhverfishávaða á andlega líðan og líkamlegt heilsufar fólks vel þekkt og fjölmargar borgir víða um heim farnar markvisst að vinna í aðgerðum til að draga úr óþarfa hávaða. Haft er eftir fulltrúa eftirlitsins að „full ástæða sé til að hafa áhyggjur af áhrifum þessa á svefn og hvíld íbúa og þar með heilsu þeirra.” Íbúasamtökin Hljóðmörk hafa nú í nær tvö ár bent eftirlitinu, öðrum stjórnsýslustofnunum og stjórnmálafólki á höfuðborgarsvæðinu á neikvæð áhrif óþarfa flugs frá Reykjavíkurflugvelli. Flugvöllurinn er eins og áður segir einstakur í nágrannalöndum okkar hvað varðar eftirlitsleysi og stjórnleysi þegar kemur að tegund og magni flugumferðar og staðsetningu vallarins. Hvergi í miðborgum Evrópu þekkist til dæmis að heilu sunnudagar fólks á jörðu niðri séu undirlagðir af langvinnu hringsóli kennsluflugvéla, og milljarðamæringar fá hvergi jafn ódýr einkaþotustæði í miðri byggð. Það vekur sífellt meiri furðu að engar hljóðmælingar fara fram við flugvöllinn, og að áhrif hávaða í opinberum skýrslum byggir á reiknuðum gildum sem rekstraraðilinn sjálfur leggur fram. Á meðan hafa einkamælar ítrekað mælt í kringum 80 db í hverfum kringum flugvöllinn, og uppgefin hávaðamerki frá þyrluframleiðendum benda til að slíka starfsemi ætti að lágmarka yfir byggð. En það þarf svo sem ekki annað en að vera í leikskóla eða eiga heima undir þyrlu í lágflugi til að átta sig á því. Sofið út í London Hljóðmörk hefur áður lýst áhyggjum af afskiptaleysi íslenskrar stjórnsýslu af hávaðamengun og öryggisógn í kringum starfsemina á Reykjavíkurflugvelli. Fjölmennasta svæði Íslands þarf einhverra hluta vegna að beygja sig og sveigja í meðvirkni með miðlægasta borgarflugvelli Evrópu. Sunnudagsmorguninn 10. maí gátu íbúar London sofið út þar sem London City flugvöllurinn er lokaður frá hádegi á laugardegi til hádegis á sunnudegi. Umferð um hann lýtur ströngu regluverki og eftirliti enda er hann 14 km frá skilgreindri miðborg London. Þar er hvorki kennslu- né þyrluflug og flugleiðir eru hannaðar til að valda sem minnstum ama. En íbúar í Skerjafirði, Kársnesi og Garðabæ vöknuðu hins vegar við kunnulegt hljóð kl. 8.15 sama sunnudagsmorgun. Þá hóf sig á loft einkaþota frá Kaliforníu í átt til Liverpool frá Reykjavíkurflugvelli þar sem fjarlægðin frá brautarenda í norður er 1 km frá Alþingishúsinu og 650 m í suður að stóru íbúðarhverfi í Kópavogi. Næsta klukkutímann fóru fimm vélar frá vellinum og þota Icelandair á leið frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur flaug yfir höfuðborgarsvæðið endilangt. Samkvæmt upplýsingum sem hafa birst í fjölmiðlum hefur Heilbrigðiseftirlitið lagt til þó nokkrar takmarkanir sem skilyrði fyrir útgáfu starfsleyfis Reykjavíkurflugvallar sem starfar nú á öðru ári á undanþágum. Enda væri tilgangur eftirlitsins enginn ef það gerði ekki alvarlegar athugasemdir við starfsemina í núverandi mynd. Leyfi til að valda ónæði Þann 7. maí birti Heilbrigðiseftirlitið athyglisverða aðgerðaráætlun sem unnin er í samræmi við kröfur Evróputilskipunar um umhverfishávaða. Markmið áætlunarinnar er að draga úr áhrifum hávaða á heilsu og lífsgæði borgarbúa. Þar segir orðrétt: Áætlunin felur í sér fjölbreyttar aðgerðir til að draga úr hávaða, meðal annars uppsetningu hljóðvarna, betrumbætur á skipulagi, lækkun umferðarhraða og eflingu umhverfisvænna ferðamáta á borð við göngu, hjólreiðar og almenningssamgöngur. Áhersla verður lögð á svæði þar sem hávaði veldur íbúum verulegu ónæði, sérstaklega þar sem hljóðstig fer yfir mörk sem skilgreind eru í reglugerðum. Þá verður einnig unnið að því að vernda og þróa svokölluð kyrrlát svæði í borginni. Seinna í aðgerðaráætluninni má hinsvegar finna þessa málsgrein.Umtalsverður hávaði berst einnig frá flugumferð um Reykjavíkurflugvöll en hann er undanskilinn aðgerðaáætlun þessari. Á meðan við höfum áhyggjur af afskiptum og hótunum sérhagsmuna gagnvart ferlinu sem er í gangi varðandi starfsleyfi Reykjavíkurflugvallar hvetjum við eftirlitið til þess að standa vörð um hagsmuni og heilsufar íbúa gagnvart hávaðamengun í hvívetna. Höfundar eru meðlimir í Hljóðmörk, íbúasamtökum gegn óþarfa flugumferð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Flug Reykjavíkurflugvöllur Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar