Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2026 09:42 Tíu smágrísir drápust og þurfti að aflífa einn vegna kjálkabrots. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Wil Waldron Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags og voru unnar miklar skemmdir. Þá var dýrum hleypt út og drápust tíu smágrísir auk þess sem taka þurfti einn grís af lífi vegna kjálkabrots. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar.
Í tilkynningu frá Stjörnugrís segir að tvær hurðir hafi verið brotnar upp og miklar skemmdir hafi verið unnar bæði á skrifstofuaðstöðu starfsfólks og í svínahúsum. Innréttingar hafi verið rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar svo dýrin gengu laus um húsin og tún við húsin. „Afleiðingar innbrotsins fyrir dýrin eru mjög alvarlegar. Tíu smágrísir drápust í ringulreiðinni sem skapaðist og t.a.m. þurfti að aflífa einn grís vegna kjálkabrots. Þá eru fjölmargar gyltur með áverka, meðal annars haltar og rispaðar, og eitt fósturlát hefur þegar orðið. Búast má við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fleiri fósturláta,“ segir í tilkynningunni. Kært til lögreglu Þá segir einnig að verulega hafi verið brotið gegn smitvörnum hússins þar sem dýr úr mismunandi hópum blönduðust saman og sum þeirra hafi farið út úr húsum þess. Málið hefur verið kært til lögreglu og er til rannsóknar þar. Þá er einnig búið að láta Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis vita af atvikinu. Umfang og framkvæmd verknaðarins þykja benda til þess að fleiri en einn hafi verið að verki. Þá þykja verksummerki benda til þess að brotið hafi verið framið undir yfirskyni dýravelferðar, þó að afleiðingarnar hafi valdið dýrunum verulegu tjóni og þjáningum, eins og segir í tilkynningunni. „Þegar starfsfólk kom til vinnu um morguninn blasti við skelfileg sjón. Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi og í óreiðunni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sérstaklega þungbært var að finna dauða grísi eftir nóttina,“ segir Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss í tilkynningunni. Starfsfólk í áfalli Hann segir starfsfólkið hafa orðið fyrir miklu áfalli við að sjá bæði vinnustað sinn og dýrin í þessu ástandi og það hafi verið sent heim. „Þetta er ekki aðeins töluvert eignatjón heldur fyrst og fremst mjög alvarlegt mál fyrir dýrin sjálf. Að ráðast inn að næturlagi, þegar dýrin eru í hvíld, valda hávaða, óreiðu og reka þau um húsin hafði veruleg áhrif á líðan þeirra og öryggi. Mjög alvarlegt er þegar ró raskast hjá gyltum með got. Spenagrísir eru afar viðkvæmir fyrstu dagana og ef þeir týna móður sinni eða lenda hjá rangri gyltu getur hún hafnað þeim. Þá fá þeir hvorki næga næringu né vernd og geta veikst eða drepist á skömmum tíma.“ Mótmæli eigi aldrei að bitna á dýrunum Geir segir að Stjörnugrís hafi um nokkurt skeið unnið að undirbúningi umfangsmikilla framkvæmda með það að markmiði að bæta aðbúnað enn frekar og tryggja að þessi mál séu eins vel úr garði gerð og kostur er. Enn séu þó ákveðin mál hjá stjórnvöldum sem bíða úrlausnar áður en hægt verður að ráðast að fullu í þær framkvæmdir. „Við viljum jafnframt hvetja þá sem stóðu að þessum verknaði til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Við skiljum vel að fólk hafi áhuga á og áhyggjur af dýravelferð og það er af hinu góða að velferð dýra sé í hávegum höfð í samfélaginu. Það er eitt að mótmæla eða hafa skoðanir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þjáningu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyðileggja umhverfi þeirra í nafni málstaðar síns. Ég tel að allir hljóti að fordæma verknað af þessu tagi. Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýrunum sjálfum.“
Dýr Lögreglumál Dýraheilbrigði Matvælaframleiðsla Reykjavík Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira