Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. maí 2026 17:30 Ólöf Marín Úlfarsdóttir regluvörður Reykjavíkurborgar. Vísir Gagnaleki vegna birtingar ársreiknings Reykjavíkurborgar í lok apríl hefur verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Tekið er fram í bréfi regluvarðar Reykjavíkurborgar að um sé að ræða markaðssvik. Þetta má sjá í bréfi regluvarðarins til borgarráðs. Þar er vísað til alvarlegs gagnaleka á ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 þann 27. apríl og tengist frétt sem birtist á mbl.is klukkan 13:30 þann dag með öllum helstu upplýsingum og lykiltölum ársreikningsins. Birtist á sama tíma „Atvik voru með þeim hætti að fundur borgarráðs mánudaginn 27. apríl sl. varð lengri en upphaflega var áætlað og var ákveðið að fresta birtingu ársreikningsins þar til eftir að fundi lyki eða til kl. 13.30. Var birting í Kauphöll tímastillt af regluverði svo að ársreikningurinn birtist kl. 13.30 að staðartíma. Vitneskja um tímasetningu birtingar í Kauphöll var ekki öðrum kunn en þeim er sátu fundinn, auk regluvarðar.“ Gögnin hafi verið lögð fyrir fundamenn með trúnaðarmerkingu líkt og venja sé, einnig hafi legið fyrir trúnaðarbréf frá fjármálastjóra Reykjavíkurborgar til borgarfulltrúa og áheyrnarfulltrúa þar sem ítrekað hafi verið að gögnin væru trúnaðarmál og að sá trúnaðir skyldi haldast fram að opinberri birtingu þeirra. „Það liggur því fyrir að um ólögmæta miðlun upplýsinga var að ræða til Morgunblaðsins, enda birtist frétt mbl.is, þar sem þegar var búið að vinna úr ársreikningnum, á sömu mínútu og ársreikningurinn var birtur í Kauphöll, eða nákvæmlega kl. 13:30.“ Eftirfarandi borgarfulltrúar höfðu aðgangsstýrðan aðgang að tilgreindum gögnum fyrir borgarráðsfund þann 27. apríl sl. í gegnum rafræna gagnagátt Reykjavíkurborgar (Saltfisk) og sátu fund borgarráðs sama dag. Auk þeirra höfðu starfsmenn á skrifstofu borgarstjórnar og skrifstofu borgarstjóra og borgarritara aðgang að gögnunum en sátu ekki fund borgarráð að undanskildum þeim er getið er hér að neðan. Þá sátu þeir starfsmenn fjármála- og áhættustýringarsviðs sem stóðu að uppgjöri fundinn auk endurskoðenda. Tekið skal fram að aðilar eru einnig skráðir á innherjarlista Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri Heiða Björg Hilmisdóttir Róbert Marshall aðstoðarmaður Borgarritari Þorsteinn Gunnarsson Aðalmenn í borgarráði og varamenn Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir Skúli Helgason Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Helga Þórðardóttir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Kjartan Magnússon Líf Magneudóttir Skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar Helga Björk Laxdal Heimir Snær Guðmundsson (umsjón með fundi borgarráðs) Lekinn falli undir strangari reglur en almennt um trúnaðarbrot Þá segir í bréfinu að það sé ekki sjálfstætt vald borgarfulltrúa eða annars starfsfólks að ákveða að afnema trúnað af gögnum sem stjórnsýslan hafi merkt sem slík. Leki á óbirtum ársreikningi falli undir strangari reglur en almennt trúnaðarbrot og teljist undantekningalaust til innherjaupplýsinga ef útgefandinn er með skráð verðbréf á markaði, eins og eigi við í þessu tilfelli. Ótalið sé svo mikilvægi þess að sýna heilindi og trúverðugleika í allri framkomu fyrir hönd borgarinnar gagnvart ytri aðilum, semsagt fjárfestum og öðrum sem borgin reiði sig á til fjármögnunnar. Jafnræði fjárfesta sé þar lykilatriði og segir í bréfinu að með því að leka innherjaupplýsingum sé vegið að grundvallarreglunni um að allir markaðsaðilar skuli hafa jafnan aðgang að upplýsingum samtímis. „Leki á fjárhagsgögnum eru markaðssvik sem grafa undan trausti á fjármálakerfinu og eru alvarlegt brot á siðareglum. Hefur framangreint atvik verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Er það lagt í þeirra hendur að bregðast við með viðeigandi hætti.“ Reykjavík Borgarstjórn Fjölmiðlar Seðlabankinn Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira
Þetta má sjá í bréfi regluvarðarins til borgarráðs. Þar er vísað til alvarlegs gagnaleka á ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 þann 27. apríl og tengist frétt sem birtist á mbl.is klukkan 13:30 þann dag með öllum helstu upplýsingum og lykiltölum ársreikningsins. Birtist á sama tíma „Atvik voru með þeim hætti að fundur borgarráðs mánudaginn 27. apríl sl. varð lengri en upphaflega var áætlað og var ákveðið að fresta birtingu ársreikningsins þar til eftir að fundi lyki eða til kl. 13.30. Var birting í Kauphöll tímastillt af regluverði svo að ársreikningurinn birtist kl. 13.30 að staðartíma. Vitneskja um tímasetningu birtingar í Kauphöll var ekki öðrum kunn en þeim er sátu fundinn, auk regluvarðar.“ Gögnin hafi verið lögð fyrir fundamenn með trúnaðarmerkingu líkt og venja sé, einnig hafi legið fyrir trúnaðarbréf frá fjármálastjóra Reykjavíkurborgar til borgarfulltrúa og áheyrnarfulltrúa þar sem ítrekað hafi verið að gögnin væru trúnaðarmál og að sá trúnaðir skyldi haldast fram að opinberri birtingu þeirra. „Það liggur því fyrir að um ólögmæta miðlun upplýsinga var að ræða til Morgunblaðsins, enda birtist frétt mbl.is, þar sem þegar var búið að vinna úr ársreikningnum, á sömu mínútu og ársreikningurinn var birtur í Kauphöll, eða nákvæmlega kl. 13:30.“ Eftirfarandi borgarfulltrúar höfðu aðgangsstýrðan aðgang að tilgreindum gögnum fyrir borgarráðsfund þann 27. apríl sl. í gegnum rafræna gagnagátt Reykjavíkurborgar (Saltfisk) og sátu fund borgarráðs sama dag. Auk þeirra höfðu starfsmenn á skrifstofu borgarstjórnar og skrifstofu borgarstjóra og borgarritara aðgang að gögnunum en sátu ekki fund borgarráð að undanskildum þeim er getið er hér að neðan. Þá sátu þeir starfsmenn fjármála- og áhættustýringarsviðs sem stóðu að uppgjöri fundinn auk endurskoðenda. Tekið skal fram að aðilar eru einnig skráðir á innherjarlista Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri Heiða Björg Hilmisdóttir Róbert Marshall aðstoðarmaður Borgarritari Þorsteinn Gunnarsson Aðalmenn í borgarráði og varamenn Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir Skúli Helgason Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Helga Þórðardóttir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Kjartan Magnússon Líf Magneudóttir Skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar Helga Björk Laxdal Heimir Snær Guðmundsson (umsjón með fundi borgarráðs) Lekinn falli undir strangari reglur en almennt um trúnaðarbrot Þá segir í bréfinu að það sé ekki sjálfstætt vald borgarfulltrúa eða annars starfsfólks að ákveða að afnema trúnað af gögnum sem stjórnsýslan hafi merkt sem slík. Leki á óbirtum ársreikningi falli undir strangari reglur en almennt trúnaðarbrot og teljist undantekningalaust til innherjaupplýsinga ef útgefandinn er með skráð verðbréf á markaði, eins og eigi við í þessu tilfelli. Ótalið sé svo mikilvægi þess að sýna heilindi og trúverðugleika í allri framkomu fyrir hönd borgarinnar gagnvart ytri aðilum, semsagt fjárfestum og öðrum sem borgin reiði sig á til fjármögnunnar. Jafnræði fjárfesta sé þar lykilatriði og segir í bréfinu að með því að leka innherjaupplýsingum sé vegið að grundvallarreglunni um að allir markaðsaðilar skuli hafa jafnan aðgang að upplýsingum samtímis. „Leki á fjárhagsgögnum eru markaðssvik sem grafa undan trausti á fjármálakerfinu og eru alvarlegt brot á siðareglum. Hefur framangreint atvik verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Er það lagt í þeirra hendur að bregðast við með viðeigandi hætti.“
Eftirfarandi borgarfulltrúar höfðu aðgangsstýrðan aðgang að tilgreindum gögnum fyrir borgarráðsfund þann 27. apríl sl. í gegnum rafræna gagnagátt Reykjavíkurborgar (Saltfisk) og sátu fund borgarráðs sama dag. Auk þeirra höfðu starfsmenn á skrifstofu borgarstjórnar og skrifstofu borgarstjóra og borgarritara aðgang að gögnunum en sátu ekki fund borgarráð að undanskildum þeim er getið er hér að neðan. Þá sátu þeir starfsmenn fjármála- og áhættustýringarsviðs sem stóðu að uppgjöri fundinn auk endurskoðenda. Tekið skal fram að aðilar eru einnig skráðir á innherjarlista Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri Heiða Björg Hilmisdóttir Róbert Marshall aðstoðarmaður Borgarritari Þorsteinn Gunnarsson Aðalmenn í borgarráði og varamenn Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir Skúli Helgason Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Helga Þórðardóttir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Kjartan Magnússon Líf Magneudóttir Skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar Helga Björk Laxdal Heimir Snær Guðmundsson (umsjón með fundi borgarráðs)
Reykjavík Borgarstjórn Fjölmiðlar Seðlabankinn Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira