Alþjóðlegur dagur rauðra úlfa 10. maí – sjúkdómur sem enn er of lítið þekktur Hrönn Stefánsdóttir skrifar 10. maí 2026 15:02 Þann 10. maí er alþjóðlegur dagur rauðra úlfa (lupus) haldinn víða um heim. Markmið dagsins er að vekja athygli á rauðum úlfum, langvinnum sjálfsofnæmissjúkdómi sem getur haft áhrif á flest líffærakerfi líkamans og veruleg áhrif á lífsgæði þeirra sem greinast. 90% þeirra sem greinast með sjúkdóminn eru konur og getur hann greinst hjá fólki á öllum aldri. Börn eru þar ekki undanskilin. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að vitund um sjúkdóminn er enn mjög takmörkuð. Um 58% fólks í heiminum segist vita lítið eða ekkert um rauða úlfa, og í Evrópu er staðan enn verri þar sem um 68% hafa litla þekkingu á sjúkdómnum. Þessi skortur á þekkingu getur haft raunverulegar afleiðingar fyrir þá sem lifa með sjúkdóminn. Rauðir úlfar eru sjúkdómur sem er ekki alltaf sýnilegur. Einkenni eru mjög breytileg milli einstaklinga og geta meðal annars falist í mikilli þreytu, liðverkjum, húðútbrotum og bólgum í líffærum eins og nýrum, lungum eða hjarta. Þrátt fyrir það vita margir ekki að sjúkdómurinn getur haft áhrif á hvaða líffæri sem er og yfir 40% gera sér ekki grein fyrir því að einkenni geta verið mjög mismunandi frá einum einstaklingi til annars. Hann veldur einnig sólarofnæmi sem gerir það að verkum að fólk getur orðið veikt af því að vera úti í sól. Þessi fjölbreytni einkenna gerir það að verkum að greining getur verið flókin og tekið langan tíma og margir ganga með sjúkdóminn í mörg ár án þess að fá skýr svör eða rétta meðferð. Þrátt fyrir framfarir í læknisfræði eru rauðir úlfar enn sjúkdómur sem getur haft mikil áhrif á daglegt líf. Fólk með rauða úlfa þarf oft að aðlaga líf sitt að sveiflukenndum einkennum, ófyrirsjáanlegri þreytu og tímabilum þar sem sjúkdómurinn versnar. Samt sem áður gerir nærri helmingur fólks sér ekki grein fyrir því að sjúkdómurinn getur haft áhrif á getu til að vinna eða sinna daglegum athöfnum. Það sem oft gleymist er að margir sem lifa með rauða úlfa upplifa skort á skilningi frá umhverfinu þar sem einkennin eru ekki alltaf sýnileg. Misskilningur getur jafnvel leitt til félagslegrar einangrunar. Einn af hverjum fimm Evrópubúum telur ranglega að rauðir úlfar séu smitandi og sumir segjast óöruggir með að knúsa eða deila mat með fólki með sjúkdóminn. Þessi viðhorf endurspegla skort á fræðslu, en geta engu að síður haft áhrif á líðan og félagslega stöðu þeirra sem eru með sjúkdóminn. Þess vegna skiptir vitundarvakning eins og alþjóðlegur dagur rauðra úlfa miklu máli, hann hjálpar til við að auka skilning, leiðrétta misskilning og draga úr fordómum og vanþekkingu. Á Íslandi, líkt og annars staðar, er mikilvægt að efla fræðslu um rauða úlfa bæði meðal heilbrigðisstarfsfólks og almennings. Rannsóknir sýna að fólk leitar helst til heilbrigðisstarfsfólks og skoðar áreiðanlegar vefsíður eftir upplýsingum um sjúkdóminn, sem undirstrikar mikilvægi þess að réttar og aðgengilegar upplýsingar séu til staðar. Gigtarfélag Íslands er meðal þeirra sem sinna þessu mikilvæga fræðsluhlutverki. Félagið veitir aðgang að vönduðu fræðsluefni en er einnig með stuðningshóp sem bæði hittist hjá félaginu og heldur utan um lokaðan hópa á Facebook, fyrir þau sem eru með rauða úlfa og aðstandendur þeirra. Við sem búum á Íslandi erum svo heppin að þegar fólk hefur fengið greiningu hefur það aðgang að frábærum læknum og bestu meðferðum sem völ er á. Líðan fólks batnar oft til muna þegar rétt greining liggur fyrir og viðeigandi meðferð er hafin. Það er því miður ekki raunin alls staðar í heiminum. Það sem við þurfum hins vegar að gera betur er að auka þekkingu á rauðum úlfum þannig að leiðin að greiningu styttist og fólk fái fyrr rétta meðferð, sem getur skipt sköpum fyrir bata og lífsgæði. Alþjóðlegur dagur rauðra úlfa er því ekki aðeins táknrænn heldur áminning um að enn er verk að vinna. Með aukinni fræðslu, meiri sýnileika og raunverulegum sögum fólks sem lifir með sjúkdómnum getum við bætt skilning, stuðning og lífsgæði þeirra sem glíma við þennan sjúkdóm. Höfundur er formaður Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun