Aldursvæn samfélög – verkefni nýrra sveitarstjórna Halldór S. Guðmundsson skrifar 8. maí 2026 16:47 Eftir sveitarstjórnarkosningar 16. maí n.k. er tækifæri fyrir núverandi frambjóðendur og væntanlega sveitarstjórnarfulltrúa, til að setja málefni aldursvænna samfélaga ofarlega á dagskrá í sínu sveitarfélagi. Við Íslendingar stöndum frammi fyrir breytingum á lýðfræðilegri þróun. Breytingin felst í að fólki á efri árum fjölgar nokkuð hratt og lifir lengur en áður. Þetta er vissulega jákvæð þróun, en kallar á markvissa stefnumótun og forgangsröðun um breyttar áherslur og viðhorf í málefnum eldra fólks og samfélagsins. Áherslur Norðmanna, sýna hversu mikilvægt það er að nálgast málefnið með heildstæðum hætti. Í stefnu þeirra frá árinu 2023 um „að búa örugg heima“ er lögð mikil áhersla á að skapa aldursvæn samfélög þar sem fólk getur lifað sem lengst sjálfstæðu lífi. Þar eru fjögur svið sett í forgang; aldursvænt nærsamfélag og virkni og þátttaka eldra fólks, hentugt húsnæði, hæft starfsfólk og öryggi og stuðningur við notendur og fjölskyldur þeirra. Þessar áherslur undirstrika að viðfangsefni aldursvænna samfélaga er ekki einungis heilbrigðismál, heldur samfélagslegt verkefni sem snertir skipulag og framkvæmd málefna sem eru á verkefnalista sveitarfélaganna og varðar þjónustu og mannlífið. Á Íslandi hefur verið lagður lagagrunnur að slíkri sýn sem einnig er sett fram sem hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast. Grunnurinn að aðgerðaráætluninni byggir á skýrslunni Virðing og reisn þar sem lögð er áhersla á heilbrigða öldrun og samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu, aukna heimaþjónustu og persónumiðaða þjónustu sem styður fólk til að búa heima. Lykilhugtökin eru samþætting, samvinna og þjónusta á forsendum einstaklingsins, fjölskyldunnar og nærsamfélagsins. Unsplash/Vitaly Gariev Sveitarstjórnir gegna lykilhlutverki við að byggja upp aldursvæn samfélög. Þær skipuleggja nærumhverfi fólks, veita félagsþjónustu og hafa áhrif á daglegt líf eldra fólks. Aldursvænt samfélag á Íslandi verður hins vegar ekki til af sjálfu sér, það krefst markvissrar stefnu, samvinnu og hugrekkis til að breyta áherslum, meðal annars frá hefðbundinni og stofnanamiðaðri þjónustu yfir í stuðning við eldra fólk í heimahúsi. Í upphafi kjörtímabils og nýrra málefnasamninga felast tækifæri. Þá er lag til að taka skrefið og gera aldursvæn samfélög að forgangsmáli í sem flestum byggðum. Það er ekki aðeins fjárhagslega skynsamlegt, heldur fyrst og fremst spurning um virðingu, reisn og lífsgæði fyrir alla íbúa – til að eldast saman. Höfnudur er prófessor við félagsráðgjafardeild HÍ, íbúi í Eyjafjarðarsveit og skipar 9. sæti á F-lista. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Eyjafjarðarsveit Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar