Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. maí 2026 16:01 David Attenborough hefur farið hundrað hringi í kringum sólina og unnið ómetanlegt starf fyrir náttúruvernd. EPA Náttúrufræðingurinn og fjölmiðlamaðurinn David Attenborough fagnar hundrað ára afmæli í dag. Fáir hafa lagt jafnmikið á vogarskálar náttúruverndar í sögunni en hamingjuóskum hefur rignt inn til Attenborough og afmæli hans fagnað víða um heim.
Attenborough sendi frá sér kveðju í tilefni dagsins og sagði fjölda afmæliskveðja sem hefði borist honum vera yfirþyrmandi. Þær hefðu borist frá leikskólum, eldri borgurum og fólki af öllum aldri og hann væri gríðarlega þakklátur þeim öllum. „Ég hafði hugsað mér að fagna hundrað ára afmælinu í rólegheitum en mörg ykkar virðast hafa annað í hyggju,“ sagði hann jafnframt. Aldarafmæli náttúrufræðingsins er víða fagnað með viðburðum, sýningum og öðrum gjörningum. Attenborough með Karli Bretakonungi á frumsýningu heimildarmyndarinnar Ocean í fyrra.GEtty Breska ríkisútvarpið stendur fyrir lifandi viðburði í Royal Albert Hall, sem verður sjónvarpað beint á BBC One, þar sem sinfoníuhljómsveit spilar tónlist úr þáttum Attenborough ásamt frásögnum og sögum af afmælisbarninu frá náttúruverndarsinnum og þekktum persónum. Sjá einnig: Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Náttúrugripasafnið í Lundúnum hefur í tilefni afmælisins gefið nýuppgötvaðri tegund sníkilsvespu nafnið Attenboroughnculus tau og heldur jafnframt úti sýningunni Our Story With David Attenborough fram í ágúst. Nemendur við grunnskóla í Stratford-upon-Avon slepptu hundrað bláum morpho-fiðrildum í Stratford í tilefni af árunum hundrað. Hundrað Morpho-fiðrildum var sleppt í Stratford í tilefni dagsins.Getty Kveðjur hafa borist til Attenborough úr öllum kimum bresks þjóðfélags og frá aðdáendum hans um allan heim. Vísindamenn, stjórmálamenn og þekkt fólk úr dægurmenningunni hefur sent náttúrufræðingnum kveðju, má þar nefna leikarann Ian McKellen, tónskáldið Hans Zimmer, David Beckham, Karl Bretakonung og Kamillu Bretadrottningu. Einn sá áhrifamesti David Attenborough fæddist í Isleworth í vesurhluta Lundúna 8. maí 1926 og ólst upp skammt frá Leicester. David lék sé mikið í sveitinni sem barn og hjólaði margra kílómetra leið til að komast út í skóg þar sem hann leitaði að fornleifum undir steinum. Attenborough er vafalaust áhrifamesti heimildarmyndagerðamaður heims.Getty Eftir að hafa starfað í breska sjóhernum og í bókaútgáfu sótti hann um starf hjá breska ríkisútvarpinu árið 1950 og hóf fljótlega eftir það að gera fræðilega þætti í sjónvarpinu. Hann vann sig fljótt upp metorðastigann innan ríkisútvarpsins og var ráðinn stjórnandi yfir BBC 2 árið 1965 þar sem hann átti þátt í að framleiða og sýna fjölda sjónvarpsþátta. Náttúran og dýralíf áttu þó hug hans allan og árið 1979 framleiddi hann þrettán hluta heimildaseríuna Life on Earth. Upp frá því varð hann fljótt einn virtasti og vinsælasti náttúrulífsmyndagerðamaður heims. Á löngum ferli hefur hann framleitt ógrynni af heimildarmyndum og þáttum um náttúrulíf, má þar nefna Wildlife on One (1977-2004) Planet Earth (2006), Life (2019), Planet Earth II (2016) og Our Planet (2019-23). Á síðustu árum hefur Attenborough beint sjónum sérstaklega að skaðanum sem mannkynið hefur unnið á náttúru jarðarinnar og hamfarahlýnun. Ræða Attenborough á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi í desember 2018 vakti sérstaklega mikli athygli. „Akkúrat núna blasa við okkur manngerðar hamfarir á hnattrænum skal, stærsta ógn okkar í þúsundir: loftslagsbreyttingar,“ sagði hann og varaði við því að ef ekki yrði brugðist við væri hætta á útrýmingu alls náttúrulíf og hrun siðmenningar.
Tímamót Náttúruhamfarir Umhverfismál Bretland Mest lesið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira