Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Stefán Árni Pálsson skrifar 7. maí 2026 20:02 Ásdís afgreiðir brúðarkjóla á hverjum degi og þekkir vel tískuna. Nú er brúðkaupstímabilið fram undan og Vala Matt ákvað að skoða hvaða kjólar, brúðarkjólar, eru vinsælastir og þar kom ýmislegt óvænt í ljós. Það er alltaf gaman að skoða ævintýralega og flotta og stundum jafnvel mjög dramatíska brúðarkjóla.
Erlendis eru nokkrir kjólar heimsþekktir á heimsþekktum konum, prinsessum og stjörnum. En hvernig brúðarkjólar eru vinsælastir á Íslandi? Hvernig brúðarkjól vill hin íslenska brúður? Vala fór í leiðangur og spjallaði við Ásdísi Gunnarsdóttur sem rekur Brúðarkjólaleiguna Loforð ásamt Írisi Hrönn Hreinsdóttur. Eru farnar að fara all in „Tískan er í fyrsta skipti í mörg ár orðin það sem við köllum ball gowns, sem eru stóru, stóru pilsin, það er rosa nýtt. Þó að það hafi verið áður þá er langur tími sem þær hafa alls ekki viljað það og eru allt í einu komnar alla leið þangað,“ segir Ásdís. „Það var stelpa um daginn, kona, ung kona, að máta hjá ykkur og hún er búin að velja kjólinn. Hvernig kjóll er það sem hún var að ákveða að taka,?“ spyr Vala. „Hún fór bara svolítið all in. Kom inn og hélt að hún vildi eitthvað sem er mjög algengt. En fór einhvern veginn í brúðarkjól sem kom henni, held ég, sjálfri svolítið á óvart. En ótrúlega skemmtilegt ferli. Ég ætla ekki að segja alveg svo ég vilji ekki eyðileggja fyrir henni þetta óvænta. En hún valdi sér alveg klikkaðslega fallegan kjól.“ Undanfarið hafa sniðin verið nokkuð látlaus. „Það er búið að vera það svolítið lengi og ég myndi segja sérstaklega kannski bara hin íslenska brúður. Hún vill svolítið láta lítið fyrir sig fara, ekki einhvern veginn vera of mikið. En það er eins og hún sé að leyfa sér að taka meira pláss núna sem okkur finnst náttúrulega ótrúlega skemmtilegt. Við erum svolítið að sjá, eins og ég sagði áðan, að íslenska brúðurin er svolítið frábrugðin kannski öllum öðrum mörkuðum en við getum lýst henni svolítið sem blöndu af hinni skandinavísku brúður og síðan þessari amerísku. Það er kannski það sem er að breytast svolítið. Þá er ég að meina að þær fara í kannski þessa stærri kjóla, meira í gangi en kannski einfaldleikinn í efnunum á móti. Þannig að það er svolítið svona að ná þessu jafnvægi. Þannig að það sé mikið í gangi en ekki að fara yfir ákveðna línu.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Vala Matt Ísland í dag Brúðkaup Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira