100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar 6. maí 2026 16:17 Núna í vikunni samþykkti norska Stórþingið að félagasamtök þar í landi geti fengið fulla (100%) endurgreiðslu virðisaukaskatts af rekstrarkostnaði. Með þessari ákvörðun undirstrikar Stórþingið mikilvægi almannaheillafélaga og sjálfboðaliðastarfs í norsku samfélagi. Markmiðið er að tryggja að virðisaukaskattur verði ekki hindrun í starfsemi þeirra og að rekstrarumhverfi samtakanna verði sambærilegt því sem gildir um aðila sem fá innskatt endurgreiddan. Við á Íslandi erum langt á eftir Norðmönnum í þessum efnum. Á Íslandi fá almannaheillafélög enga endurgreiðslu virðisaukaskatts. Tímabundið ákvæði um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við viðhald og uppbyggingu húsnæðis í eigu almannaheillafélaga var fellt niður um síðustu áramót. Á undanförnum árum hafa félagasamtök í Noregi getað sótt um endurgreiðslu virðisaukaskatts úr sérstökum sjóði sem stjórnvöld ákveða fjárhæð í hverju sinni. Heildarupphæðin sem hefur verið til úthlutunar hefur þó verið takmörkuð og því hefur fyrirkomulagið ekki veitt félagasamtökum nægan fyrirsjáanleika. En núna munu almannaheillafélög í Noregi njóta tryggari og varanlegri endurgreiðslu virðisaukaskatts, hafa meira fjármagn til kjarnastarfsemi sinnar og þ.a.l. geta eflt þjónustu sína við samfélagið. Nú þurfa íslensk stjórnvöld að girða sig í brók, horfa til Noregs og fylgja fordæmi þeirra með því að opna fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts af rekstrarkostnaði almannaheillafélaga. Með því yrði sjálfboðaliðastarf og almannaheillastarfsemi styrkt, jafnræði aukið í skattkerfinu, fjárhagslegt svigrúm félagasamtaka bætt og samfélagsleg þátttaka og þjónusta við almenning efld. Höfundur er framkvæmdastjóri KFUM og KFUK á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagasamtök Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Núna í vikunni samþykkti norska Stórþingið að félagasamtök þar í landi geti fengið fulla (100%) endurgreiðslu virðisaukaskatts af rekstrarkostnaði. Með þessari ákvörðun undirstrikar Stórþingið mikilvægi almannaheillafélaga og sjálfboðaliðastarfs í norsku samfélagi. Markmiðið er að tryggja að virðisaukaskattur verði ekki hindrun í starfsemi þeirra og að rekstrarumhverfi samtakanna verði sambærilegt því sem gildir um aðila sem fá innskatt endurgreiddan. Við á Íslandi erum langt á eftir Norðmönnum í þessum efnum. Á Íslandi fá almannaheillafélög enga endurgreiðslu virðisaukaskatts. Tímabundið ákvæði um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við viðhald og uppbyggingu húsnæðis í eigu almannaheillafélaga var fellt niður um síðustu áramót. Á undanförnum árum hafa félagasamtök í Noregi getað sótt um endurgreiðslu virðisaukaskatts úr sérstökum sjóði sem stjórnvöld ákveða fjárhæð í hverju sinni. Heildarupphæðin sem hefur verið til úthlutunar hefur þó verið takmörkuð og því hefur fyrirkomulagið ekki veitt félagasamtökum nægan fyrirsjáanleika. En núna munu almannaheillafélög í Noregi njóta tryggari og varanlegri endurgreiðslu virðisaukaskatts, hafa meira fjármagn til kjarnastarfsemi sinnar og þ.a.l. geta eflt þjónustu sína við samfélagið. Nú þurfa íslensk stjórnvöld að girða sig í brók, horfa til Noregs og fylgja fordæmi þeirra með því að opna fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts af rekstrarkostnaði almannaheillafélaga. Með því yrði sjálfboðaliðastarf og almannaheillastarfsemi styrkt, jafnræði aukið í skattkerfinu, fjárhagslegt svigrúm félagasamtaka bætt og samfélagsleg þátttaka og þjónusta við almenning efld. Höfundur er framkvæmdastjóri KFUM og KFUK á Íslandi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar